Nýtt íslenskt fyrirtæki hyggst færa almenningi aðgang að afsláttarkjörum á húsnæðismarkaði sem hafa aðallega verið á færi fjárfesta og stærri kaupenda. Íbúðakaupendur sameinast um fjöldakaup og fá þannig hópafslátt.
Halldór Kristján Sigurðsson, eigandi Fjöldakaupa, segir þetta minna á hin gömlu hópkaupstilboð.
„Þeir sem eldri eru muna kannski eftir hópkaupstilboðum á sjónvörpum. Fjöldakaupstilboðin virkjast þegar X margar íbúðir eru seldar. Það er hugmyndafræðin. Því fleiri íbúðir því betra verð.“
Ný leið á Íslandi en þekkist erlendis
Þessi leið er ný í fasteignaviðskiptum hér á landi en þekkist annars staðar. Kaupendur skrá sig á vefsíðu fyrirtækisins, setja þar inn verðflokk sem hentar og óskastaðsetningu. Fasteignasalinn semur svo við verktaka um magn og verð. Þegar gengið hefur verið frá kaupum geta kaupendur skoðað eignirnar og hver og einn velur íbúð.
Ef tveir eða fleiri velja þá sömu er notast við hlutkesti og sá sem lýtur í lægri hlut velur þá aðra eða hættir við. Kauptilboð allra virkjast þegar ákveðinn lágmarksfjöldi íbúða selst.
„Núna standa samkvæmt talningum opinberra aðila um eitt þúsund og fjögurhundruð til fimmhundruð íbúðir sem eru tilbúnar til þess að fá nýja eigendur. Ég held það sé akkúrat rétti tíminn og mögulega verður þetta bara hluti af framtíðinni í fasteignaviðskiptum,“ segir Halldór.
HMS hefur óskað eftir kynningu á fyrirkomulaginu
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur óskað eftir kynningu á fyrirkomulaginu. Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS, segir jákvætt að til séu fjölbreyttar leiðir fyrir kaupendur og seljendur að ná saman.
„Það sem einkennir markaðinn núna er að nýbyggingar seljast illa og því er kannski eitthvað svigrúm þarna fyrir aðrar lausnir en þær sem eru nú þegar í boði á fasteignamarkaðnum,“ segir Jónas.
Hvernig áhrif heldur þú að þetta gæti haft á fasteignamarkaðinn á Íslandi?
„Að öðru óbreyttu þá myndi þetta kannski gera fleirum kleift að geta keypt íbúðir og þannig gætu fleiri nýjar íbúðir selst.“