Það ríkti spenna á meðal fólks sem kom við á bænum Lækjartúni í Ásahreppi í gær, þar sem Uppspuni er líka með sína starfsemi, en þar var hægt að skoða lopapeysurnar 24 áður en úrslitin voru tilkynnt af sérstakri dómnefnd.
„Ég ætla síðan að semja við þá sem voru að hanna og vita hvort við náum að sameinast um að gefa út eitthvað rit um þessar peysur eða bók,” segir Hulda Brynjólfsdóttir, eigandi Smáspunaverksmiðjunnar Uppspuna og bóndi í Lækjartúni.
Hvernig skýrir þú þennan mikla áhuga á prjónaskap á Íslandi?
„Það er bara endalaus áhugi á prjónaskap og að nýta ullina og það sem er í kringum okkur, þannig að leita aftur til fortíðar og búa til sitt eigið, bæði skapandi og róandi, þannig að það er gefandi á svo margan hátt,“ segir Hulda.
Það var heilmikil spenna þegar úrslitin voru tilkynnt en í þriðja sæti varð kartöflupeysan svokallaða og í öðru sæti varð peysa sem kallast Þjóðblómið. Peysan sem sigraði keppnina heitir Í Uppsveitum en sú sem hannaði hana og prjónaði heitir Helga Linnet og býr í Hafnarfirði.
Auk þess var frumlegasta peysan verðlaunuð og gestir í Lækjartúni völdu líka sína uppáhaldspeysu.
„Peysan er eiginlega bara hugsuð fyrir íslenskar konur í raun og veru og gerð úr einföldum plötulopa og hugsunin var sú að hún gæti verið fínleg og líka hlý lopapeysa og ég náði að skapa bæði,” segir Helga og bætir við: „Það er svo gefandi að setjast niður og prjóna og skapa. Ég vona að uppskriftin fái að njóta sín og fái að vera gefin út og að sjálfsögðu mun ég halda áfram að prjóna og hanna af fullum krafti.“