Bandaríska poppstjarnan Sabrina Carpenter hefur fengið í gegn fimm ára nálgunarbann gegn manni sem hún sakar um ítrekaða áreitni.AP-fréttaveitan segir frá því að dómari í Los Angeles hafi staðfest nálgunarbannið í gær en áður hafði tímabundið nálgunarbann verið gefið út gegn manninum, hinum 31 árs gamla William Applegate.Applegate kom sjálfur fram fyrir dóminn án lögmanns og mótmælti kröfunni, hélt hann því fram að hann og Carpenter væru hluti af leynilegri hernaðaráætlun og þyrftu að vera saman af „þjóðaröryggisástæðum“.
Sabrina Carpenter segir frá ógnvekjandi reynslu af meintum eltihrelli