„Konur eru svangari, fá­tækari og ör­væntingar­fyllri en nokkru sinni fyrr“ - Vísir

„Konur eru svangari, fá­tækari og ör­væntingar­fyllri en nokkru sinni fyrr“ - Vísir

„Konur eru svangari, fá­tækari og ör­væntingar­fyllri en nokkru sinni fyrr“ - Vísir

UN Women gáfu nýverið út skýrslu um stöðu kvenna auk þess sem framkvæmdastýra Un Women í Austur- og Suður-Afríku sendi frá sér yfirlýsingu vegna bágrar stöðu þeirra fyrr í vikunni. Skýrsla UN Women byggist á viðtölum við fjórtán konur sem koma að friðarviðræðum eða aktívisma auk 85 súdanskra kvenrekinna félagasamtaka.

Niðurstöður skýrslunnar sýna að konur og stúlkur á átakasvæðum hafa orðið fyrir hrottalegu ofbeldi og búa margar við langvarandi fæðuskort. Skert aðgengi mannúðar- og hjálparsamtaka að átakasvæðum gerir ástandið enn verra. Þá er nauðgunum markvisst beitt sem stríðsvopni en alþjóðalög skilgreina það sem stríðsglæp. Fram kemur í skýrslunni að nauðgunum hefur verið beitt með markvissum hætti til að brjóta niður mótstöðu fólks. Gögn sýna að hermenn hafi nauðgað konum og stúlkum í viðurvist fjölskyldumeðlima og þeir fjölskyldumeðlimir drepnir sem reyna að stöðva ofbeldið. Á undanförnum mánuðum hafa konur einnig greint frá hrottalegu og kerfisbundnu kynferðisofbeldi á flóttaleiðum út frá El-Fasher. Sambærilegar frásagnir hafa komið frá konum í Kordófan-héraði.

Samkvæmt greiningu UN Women á stöðunni í Súdan þurfa 28,9 milljónir einstaklinga í Súdan, þar á meðal 13,6 milljónir kvenna og stúlkna, á mataraðstoð að halda. Þá glíma 4,2 milljónir barna og barnshafandi kvenna við lífshættulegan næringarskort. Um 40 prósent heilbrigðisstofnana í Súdan eru óstarfhæfar en tvær árásir voru gerðar á fæðingardeildir sjúkrahúsa í Austur-Darfúr á tímabilinu 20. mars til 2. apríl.

Geta ekki sótt skóla

„Konum og stúlkum er nauðgað og þær myrtar á heimilum sínum, þeim er nauðgað á meðan þær eru á flótta, þegar þær leita matar, vatns eða læknisaðstoðar. Kynferðislegt ofbeldi er augljós hluti stríðsáætlunarinnar í Súdan,“ segir Anna Mutavati, svæðisstjóri UN Women í Austur- og Suður-Afríku, í tilkynningu sinni. 

Kynferðisbrotin sem framin eru af hermönnum í Súdan hafa það markmið að valda ótta og niðurlægja og fá að viðgangast án refsingar. „Ef stríðinu á að ljúka þarf refsileysi gerenda að ljúka. Það verður enginn friður á meðan kynferðisofbeldi fær að viðgangast og því er beitt sem einu grimmasta vopni þessa stríðs,“ bætir Mutavati við.

Hún segir einnig að nærri 60 prósent, 223.641, þeirra sem hafa hrakist á flótta í Suður-Súdan frá áramótum séu konur og stúlkur. Áætlað er að 375.825 manns hafi neyðst til að flýja heimili sín.

Þar kemur jafnframt fram að gert sé ráð fyrir því að um fimm milljónir kvenna og stúlkna í Suður-Súdan þurfi á mannúðaraðstoð að halda á þessu ári. Þar á meðal séu 2,5 milljónir kvenna og stúlkna sem þurfi á þjónustu vegna kynbundins ofbeldis að halda.

„Jafnvel áður en þessi nýjasta stigmögnun átti sér stað sögðust meira en tveir þriðju kvenna og stúlkna um allt land hafa upplifað slíkt ofbeldi. Nú þegar tímabil á milli uppskeru hefst segjast konur og stúlkur þegar vera farnar að borða villtar jurtir til að lifa af og sumar fá ekkert að borða dögum saman. Við sjáum nú þegar aukningu í vannæringu. Fyrir þær sem eru á flótta er ógnin um kynferðisofbeldi stöðugt til staðar þegar þær leita að mat og sækja vatn og eldivið,“ segir Mutavi.

Konur fær sálgæslustuðning i Norður-Darfúr. UN Women

Miklar áskoranir sem konur standa frammi fyrir

Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir konur í Súdan standa frammi fyrir þeirri áskorun að hafa verið hraktar á flótta.

„Milljónir kvenna hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna stríðsins. Þessi átök setja konur í aukna hættu þegar þær leita öryggis. Margar hafa þurft að flýja oftar en einu sinni og skortir fullnægjandi aðgang að mat, húsaskjóli, heilbrigðisþjónustu og vernd. Á sama tíma bera þær ábyrgð á umönnun barna, sem gerir daglega lífsbaráttu afar erfiða,“ segir hann í samtali við Vísi.

Hann segir auk þess átökin, fólksflótta og hrun markaða hafa leitt milljónir manna inn í alvarlegt fæðuóöryggi.

„En þessi kreppa hefur ekki sömu áhrif á alla. Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr. Fæðuóöryggi hefur aukist hraðast á heimilum sem konur stýra, og hlutfall þeirra sem búa við alvarlegan hungurvanda hefur nær tvöfaldast á einu ári, úr 14 prósentum árið 2024 í 25,9 prósent í byrjun síðasta árs.“

Því búi 75 prósent heimila sem séu undir stjórn kvenna við fæðuóöryggi og nær helmingur þeirra greini frá ófullnægjandi matarneyslu, sem er nær tvöföldun frá fyrra ári.

Konur og stúlkur borða síðast og minnst

Nkurunziza útskýrir að í kreppuaðstæðum séu það oft konur og stúlkur sem borða síðastar og minnst. Í einu héraði, Suður-Kordófan, sögðust 51 prósent heimila á flótta hafa upplifað að að minnsta kosti einn fjölskyldumeðlimur hefði sleppt mat í heilan dag og nótt, samanborið við 35 prósent í Vestur-Kordófan. Þessar niðurstöður eru úr könnun í febrúar og mars 2026.

Hann segir hjálparstofnanir eins og CARE International hafa bent á að trúverðugar upplýsingar bendi til þess að stríðandi aðilar hafi vísvitandi notað hungur sem vopn. Meðal aðferða eru eyðilegging uppskeru, eigna og vatnsbóla, umfangsmikið rán og eyðilegging markaða, upptaka búfjár og annarra auðlinda, takmörkun mannúðaraðstoðar og alvarlegar hömlur á ferðum fólks.

„Konur og stúlkur sem búa á umsáturssvæðum og átakasvæðum, svo sem í Darfúr, Vestur- og Suður-Kordófan og hluta Bláu-Nílarfylkisins, þurfa brýnt á lífsnauðsynlegri mannúðaraðstoð að halda. Einnig þurfa konur og stúlkur sem búa í búðum fyrir innflytjendur á flótta innanlands í öruggari ríkjum, svo sem í austurhéruðum landsins, Hvítu-Nílarfylki, norðurhéruðunum og Norður-Kordófan, aðstoð,“ segir hann og að samkvæmt Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni, IOM, hafi meira en 132.000 manns verið hraktir á flótta í Kordófan frá október 2025 og yfir 28.000 í Bláu-Nílarfylki frá janúar 2026. Nýleg greining sýnir að Suður-Kordófan er nú helsta svæðið fyrir kynbundið ofbeldi utan Darfúr.

Hann segir að á stuttu tímabili, frá 1. janúar til 15. mars 2026, hafi árásir víða um landið kostað meira en fimm hundruð óbreytta borgara lífið, þar á meðal konur og börn.

„Jafnframt skemmdust eða eyðilögðust mikilvægir innviðir, svo sem sjúkrahús, og enn fleiri neyddust til að flýja heimili sín.“

Nkurunziza segir að í Súdan grafi kynferðisofbeldi undan samfélagsgerðinni og leiði til félagslegrar stimplunar sem hefur bæði sálrænar og félagslegar afleiðingar.

Nkurunziza bendir á að auk þess sé talið að á þessu ári þurfi 12,7 milljónir manna, aðallega konur og stúlkur, á stuðningi að halda vegna kynferðislegs og kynbundins ofbeldis. Opinberar tölur sýni aðeins brot af umfangi brotanna vegna mikillar vanskráningar sem tengist ótta við stimplun, hefndaraðgerðir og óöryggi.

„Frásagnir þolenda og vitna benda engu að síður til þess að konur og stúlkur, þar á meðal mjög ung börn, séu markvisst skotmörk. Umfangsmikil gögn benda til þess að kynferðisofbeldi sé kerfisbundið notað sem hernaðaraðferð. Eins og ein súdönsk kona sem starfar í fremstu víglínu orðaði það: „Líkamar kvenna eru orðnir hluti af hernaðaráætlunum,““ segir Nkurunziza.

Hann segir þannig mannúðarþörfina ekki aðeins gríðarlega að umfangi heldur einnig alvarlega. Milljónir kvenna og stúlkna hafi ekki aðgang að grunnþörfum á borð við hreint vatn, mat, heilbrigðisþjónustu og viðeigandi húsaskjól. Á sama tíma sé hættan sem þær standa frammi fyrir mjög mikil og aðgangur að mannúðaraðstoð og lífsnauðsynlegri þjónustu verulega takmarkaður.

Engar refsingar í boði

Hann segir engan taka ábyrgð og engar refsingar í boði.

„Það stafar ekki aðeins af áframhaldandi átökum heldur einnig af því að dómskerfið, bæði innviðir þess og mannauður, hefur verið eyðilagt eða stórlega veikst vegna stríðsins. Á átakasvæðum er erfitt að skrásetja kynferðisofbeldi vegna hættu á frekara ofbeldi eða hefndaraðgerðum. Jafnframt fylgir kynferðisofbeldi mikil félagsleg stimplun innan samfélaganna.“

Konur fá fræðslu um kynbundið ofbeldi í öruggu rými UN Women. Un Women

Þá segir hann kvenleiðtoga og konur sem berjist fyrir mannréttindum verða fyrir áreitni, ógnunum við eftirlitsstöðvar, hótunum og hefndaraðgerðum vegna samfélagslegrar þátttöku sinnar og vegna þess að þær skrásetja mannréttindabrot, þar á meðal kynferðisofbeldi tengt átökum.

„Þolendur slíks ofbeldis mæta fjölmörgum hindrunum þegar þeir leita sér aðstoðar. Eyðilegging og óöryggi hafa grafið undan heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þolendur á afskekktum eða umdeildum svæðum geta oft ekki nálgast þjónustu nema með því að ferðast um víglínur eða óörugg svæði. Á sama tíma draga stimplun, ótti við hefndaraðgerðir, skortur á trúnaði og stjórnsýslulegar hindranir úr líkum á að fólk leiti sér hjálpar,“ segir hann.

Þrátt fyrir þessar áskoranir gegnir UN Women mikilvægu hlutverki í að styðja verndar- og sálfélagsleg úrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

„Það er gert í samstarfi við samstarfsaðila og kvennastýrð samtök, auk þess sem unnið er að því að skapa aðstæður sem styðja við bata þolenda. Þá styður UN Women einnig félagslega og efnahagslega aðlögun þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.“

Niðurskurður hafi áhrif

Nkurunziza segir að þó svo að niðurskurður á fjárframlögum Bandaríkjanna hafi ekki haft bein áhrif á starfsemi UN Women í Súdan hafi almennir niðurskurðir styrktaraðila til verkefna í Súdan haft áhrif á möguleika til að veita konum og stúlkum aðstoð.

„Nú er brýn þörf á aukinni mannúðarfjármögnun til kvennastýrðra samtaka. Reynslan sýnir að á meðan á þessum átökum hefur staðið hafa slík samtök verið lífslína fyrir konur og stúlkur á afskekktum svæðum og átakasvæðum. Þau hafa fyllt það skarð sem myndaðist þegar formleg kerfi brugðust,“ segir Nkurunziza.

Hann segir UN Women hafa unnið með meira en 75 kvennastýrðum samtökum í fimmtán fylkjum landsins til að ná til fólks á flótta og á átakasvæðum og veita lífsnauðsynlega þjónustu, fræðslu og vernd.

„Kvennastýrð samtök eru kjarninn í mannúðarstarfi í Súdan en standa frammi fyrir miklum áskorunum, þar á meðal fjárskorti sem takmarkar getu þeirra til að ná til fleiri kvenna og stúlkna sem þurfa aðstoð.“

Hver eru helstu skilaboð Sameinuðu þjóðanna varðandi Súdan núna?

  1. UN Women kallar eftir tafarlausu vopnahléi, vernd almennra borgara og fullri, öruggri og raunverulegri þátttöku kvenna í mannúðarstarfi og friðaruppbyggingu.
  2. Við hvetjum mannúðaraðila til að forgangsraða samþættum aðgerðum sem byggja á þörfum kvenna, þar á meðal viðbrögðum við kynbundnu ofbeldi, kyn- og frjósemisheilbrigðisþjónustu, geðheilbrigðisstuðningi, dreifingu hreinlætis- og nauðsynjapakka og stuðningi við lífsviðurværi í neyð.
  3. UN Women hvetur styrktaraðila til að viðurkenna, styðja og eiga samstarf við kvennastýrð samtök, veita þeim beinan og sveigjanlegan fjárstuðning og tryggja fulla og jafna þátttöku kvenna í ákvörðunum um aðgengi að aðstoð, vernd og enduruppbyggingu.

Nkurunziza segir áhyggjuefni að stríðið sé nú komið á sitt fjórða ár.

„Vaxandi ofbeldi, notkun dróna í hernaði og umfangsmikill fólksflótti hafa haft afar neikvæð áhrif á konur og stúlkur. Það er komið nóg. Þessu stríði verður að ljúka til að binda endi á þjáningar súdanskra kvenna. Við teljum að konur verði að taka þátt í formlegum samningaviðræðum og friðaruppbyggingarstarfi. Súdanskar konur geta gegnt lykilhlutverki í friðarferlinu. Þær leiða nú þegar grasrótarverkefni sem miða að því að draga úr átökum, berjast gegn hatursorðræðu og efla frið innan samfélaga sinna,“ segir hann og að forysta þeirra á vettvangi sýni vel að konur séu drifkraftur friðar.

Konur fá fræðslu í matvælafræðslu. UN Women

Konur verði að taka þátt í ákvarðanatöku

„Þær færa með sér einstaka þekkingu á þörfum, áhættu og forgangsmálum þeirra samfélaga sem hafa orðið fyrir áhrifum af stríðinu. Að lokum er nauðsynlegt að sérþekking kvenna sé nýtt í formlegri ákvarðanatöku til að tryggja sjálfbæran, réttlátan, þátttökumiðaðan og varanlegan frið í Súdan.“

Hvernig getur fólk á Íslandi hjálpað og hvers vegna skiptir það máli?

„UN Women er þakklát fyrir þann rausnarlega stuðning sem Ísland hefur veitt konum í Súdan. Nýjasta dæmið er stuðningur við mótun landsstefnu Súdan um félagslega og efnahagslega þátttöku kvenna og stúlkna með fötlun. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við þróun landsaðgerðaáætlunar til að hrinda stefnunni í framkvæmd og styrkja vernd og lífsviðurværi kvenna og stúlkna með fötlun,“ segir hann.

Þá segir hann kvennastýrð samtök í fremstu víglínu mannúðarstarfsins og veita lífsnauðsynlega aðstoð, þar á meðal færanleg eldhús fyrir matardreifingu, mæðra- og barnavernd, sálfélagslega ráðgjöf og geðheilbrigðisþjónustu.

„Með því að veita þessum samtökum beinan og sveigjanlegan fjárstuðning er hægt að auka aðgengi milljóna kvenna, stúlkna og barna að mannúðarþjónustu, sérstaklega á svæðum sem erfitt er að ná til og þar sem átökin eru hvað hörðust. Það er rétt að kreppan í Súdan hefur að miklu leyti gleymst í alþjóðlegri fjölmiðlaumfjöllun. Við þurfum á því að halda að styrktaraðilar og alþjóðasamfélagið hlusti á raddir súdanskra kvenna og stúlkna og gleymi ekki þeirri neyð sem þær búa við. Það þarf bæði aukna mannúðaraðstoð og viðvarandi pólitískan og diplómatískan þrýsting til að tryggja raunverulega þátttöku kvenna í öllum friðarviðræðum og pólitískum ferlum sem tengjast framtíð Súdan.“

#eru #fátækari #konur #svangari #örvæntingarfyllri


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262899419d/-konur-eru-svangari-fataekari-og-orvaentingarfyllri-en-nokkru-sinni-fyrr-

📰 Aðrar fréttir

Fjöldi sjálfs­víga svipaður og fyrri ár - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Fjöldi sjálfs­víga svipaður og fyrri ár - Vísir
Af þeim voru 28 karlmenn og fimmtán konur. Einn var á barnsaldri, undir 18 ára, en flestir, 21 þeirra, á aldrinum 45 til 59 ára. 22 bjuggu á höfuðborg...
Mannúðarkeðjan færist til föstudags vegna veðurs – Páll Óskar leiðir Söng sem sameinar með fjórum kórum
📅 24.09.2026 👁️ 0
Mannúðarkeðjan færist til föstudags vegna veðurs – Páll Óskar leiðir Söng sem sameinar með fjórum kórum
Mannúðarkeðjunni, sem átti að fara fram á Austurvelli í dag, fimmtudaginn 24. september, hefur verið frestað um einn dag vegna veðurs. Samstöðuaðgerði...
Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík
📅 24.09.2026 👁️ 0
Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að manni sem var á reynslulausn verði gert að fara aftur í fangelsi til að sitja af sér e...
Björn Leví segir Guðmund Inga beittan ofbeldi: „Þeim sem finnst hótanir ekki vera ofbeldi verða bara að rífast við orðabókina um það“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Björn Leví segir Guðmund Inga beittan ofbeldi: „Þeim sem finnst hótanir ekki vera ofbeldi verða bara að rífast við orðabókina um það“
Björn Levi Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, segir að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra Flokks fólksins, hafi verið beittur ofbeldi ...
Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum
📅 24.09.2026 👁️ 0
Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum
Tvær skriður féllu í Landmannalaugum eftir hádegi. Litlu munaði að önnur skriðan hafnaði á rútu. Hún hefði líklega endað ofan í á segir yfirlandvörður...
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins beindi hörðum orðum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og ríkisstjórninni allri í óund...
Björn Leví telur ein­sýnt að Guð­mundur Ingi hafi verið beittur of­beldi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Björn Leví telur ein­sýnt að Guð­mundur Ingi hafi verið beittur of­beldi - Vísir
Guðbjörg var á þeim tíma aðstoðarkona Guðmundar Inga sem telur einsýnt að hann hafi verið stunginn í bakið.  Það rímar hins vegar ekki við upplifun In...
Til­kynningar um heimilis­of­beldi milli for­eldra og barna tvö­faldast - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Til­kynningar um heimilis­of­beldi milli for­eldra og barna tvö­faldast - Vísir
Alls bárust lögreglunni um land allt 1.188 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining á milli skyldra eða tengdra einstaklinga á tímabilinu janúar t...
Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum
📅 24.09.2026 👁️ 0
Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum
Aðalmeðferð í skaðabótamáli Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra Samherja, hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þorsteinn höfðaði má...
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
📅 24.09.2026 👁️ 1
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
Íbúum í Setberginu í Hafnarfirði brá verulega síðdegis í gær þegar lögregla veitti Hopp-deilibíl eftirför í hverfinu og um tíma var báðum ökutækjum ek...
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
📅 24.09.2026 👁️ 1
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
Tékknesk-íslenska tónlistarkonan Marketa Irglová greinir frá síðasta tónlistarverkefninu sem hún og hinn írski Glen Hansard unnu að áður en hann lést ...
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
Útköll sérsveitar ríkislögreglustjóra hafa sjöfaldast frá 2014 en sveitin er ekki fullmönnuð. Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Vörðu, hugveitu ...
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
„Þarna er verið að fjalla um tæplega 60% af okkar rekstrarfjármagni og það náttúrulega segir sig sjálft að þar svona staldra ég við,“ segir hann í sam...
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
Í stuttu máli varðar dómur Hæstaréttar að kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 hafi fengið of lágar greiðslur úr fæðingarorl...
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
📅 24.09.2026 👁️ 1
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
Nýtt áhættumat frá leyniþjónustu danska hersins gerir ráð fyrir að ógnin frá Rússlandi verði meiri á næstu mánuðum gagnvart NATO og Vesturlöndum. Þett...
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
📅 24.09.2026 👁️ 1
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
Björgunarsveitir frá Stokkseyri og Árborg sinntu útkalli vegna skemmuþaks sem virtist ætla að fjúka af í heilu lagi.Skemman er við bóndabæ austan við ...
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
📅 24.09.2026 👁️ 1
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
Former England striker Andy Carroll reveals he was sexually assaulted in 2021, by a man who has subsequently been jailed for three years.
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna Fréttin24. september 2026Aðsend grein, Innlent, RÚV, TransmálLeave a Comment Samsett mynd: Fh. Ragnar Bjarnason, Eldur ...
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
📅 24.09.2026 👁️ 1
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
Rúta með rétt um 40 grunnskólabörnum innanborðs fór út af veginum ofarlega á Fagradal á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í morgun.Í tilkynningu frá L...
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
📅 24.09.2026 👁️ 1
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar yfir því að lögreglumaður, sem raunar mun líklega hafa verið lögreglunemi, hef...
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
📅 24.09.2026 👁️ 1
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
Barnastjarnan Julianna Rose Mauriello, sem í mörg ár fór með hlutverk Sollu Stirðu í barnaþáttunum um Latabæ, hefur gerbreytt um stefnu í lífinu. Maur...
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
RÚV hefur birt skilaboðin sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, þáverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann var mennta- og barnamálará...
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
„Þetta er að koma fram núna út af því sem hefur gengið á undanfarið, bæði vegna yfirlýsinga Ingu en líka yfirlýsinga frá Ragnari Þór þar sem hann svar...
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
Cardiff's Principality Stadium will host Anthony Joshua and Tyson Fury's all-British heavyweight fight on 11 December.
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
📅 24.09.2026 👁️ 1
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
Börnin sem voru í rútunni sem ekið var út af veginum á Fagradal í morgun voru grunnskólabörn úr þremur skólum í Múlaþingi. Þau voru á leið á Starfames...
Most cross-Channel migrant small boat arrivals in single day of 2026
📅 24.09.2026 👁️ 0
Most cross-Channel migrant small boat arrivals in single day of 2026
A total of 781 migrants arrive on Wednesday, but the yearly total is below the same point in 2025.
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð Að­stoð­ar­kona Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar, fyrr­ver­andi barna- og men...
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
Fyrsta alvöru haustlægðin gengur nú yfir landið og hafa fleiri viðvaranir bæst við þær sem gefnar voru út í gær. Veðurfræðingur segir spár hafa gengið...
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mætast...
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
📅 24.09.2026 👁️ 1
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
African elephants use dozens of different medicinal plants to treat themselves and their families when they are sick, research reveals.
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Jeppe Bruus varnarmálaráðherra, Thomas Ahrenkiel yfirmanni leyniþjónustu danska hersins og Michael ...
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 1
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
A new €5.14 million beach surveillance, rescue and assistance service has been launched by Arona Council, bringing longer lifeguard hours, additional ...
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
📅 24.09.2026 👁️ 1
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
The satellite station is used in part to provide internet coverage to neighbouring Ukraine, the government says.
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Austurfrétt greindi fyrst frá. Björgunarsveitir frá ...
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
📅 24.09.2026 👁️ 1
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann gegndi embætti mennta- og barnamálaráðherra, þrýsti á hann...
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlen...
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
📅 24.09.2026 👁️ 3
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar Fréttin24. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skr...
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
📅 24.09.2026 👁️ 2
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu 1-goðsagnarinnar Michael Schumacher, opnar sig um samband þeirra og lífið eftir skíðaslysið örlagaríka í nýrri h...
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Hólum, er ómyrk í máli um stöðu íslenskunnar í miðborg Reykjavíkur og víðar. Rætt er við S...
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
Móðir segist viss um að verri skiptiaðstöðu sé varla hægt að finna á Íslandi en í verslunarmiðstöðinni við Krossmóa í Reykjanesbæ. Hún vakti athygli á...
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
Læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum segja að umræða um hormónameðferðir barna séu á villigötum, hafna læknarnir því að kynin séu b...
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu og hafa björgunarsveitir sinnt nokkrum útköllum vegna veðurs. Á Hvolsvelli og Hellu fuku ferðahýsi og tr...
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét ástr...
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 2
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
Three people have been arrested after three gold bars worth around €12,000 were stolen from a home in La Laguna while renovation work was being carrie...
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
📅 24.09.2026 👁️ 2
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar...
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
📅 24.09.2026 👁️ 3
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
The Hawk T2 aircraft had been flying out of the RAF Valley station when it plummeted to the ground.
Crashed RAF jet 'steered away from houses' before pilots ejected on Anglesey
📅 24.09.2026 👁️ 1
Crashed RAF jet 'steered away from houses' before pilots ejected on Anglesey
Group Captain Gez Currie said the pilots were in hospital being cared for and were with their families.
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
Birgitta Haukdal er þekkt fyrir skemmtilegan klæðaburð á tónleikum og gaf hún ekkert eftir á því sviði í þættinum. Hún mætti í raun klædd sem fimleika...
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
Greint var frá því í morgun að á Landspítala sé nú unnið að því að innleiða nýja tegund fósturskimunar, NIPT, fyrir verðandi mæður. Með nýrri aðferð e...
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
📅 24.09.2026 👁️ 2
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
Rúta með 40 skólabörn um borð hafnaði utan vegar í Fagradal fyrir skömmu. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. Ekki er talið að neinn hafi slasast.Þetta s...