Landhelgisgæslan, lögreglan á Suðurlandi, Björgunarfélag Hornafjarðar og Björgunarsveitin Kári leituðu tveggja ferðamanna í nótt.
Þetta segir varðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi.
Ferðamennirnir, karl og kona, höfðu gengið að Kristínartindum í Vatnajökulsþjóðgarði , villst og óskað eftir aðstoð.
Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar klukkan þrjú í nótt. Hún var komin á svæðið um klukkan fimm en gat ekki aðstoðað við leitina vegna þoku. Þyrlunni var haldið á svæðinu ef þokunni skyldi létta en fólkið fannst áður en þyrlan gat athafnað sig.
Ferðamennirnir fundust heilir á húfi og gátu gengið niður af tindunum með björgunarsveitarmönnum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin aftur á stjórnstöð klukkan sjö í morgun.