Erlendur ferðamaður varð fyrir leiðinlegri reynslu hér á landi í gær þegar brotist var inn í bílinn hans og 500 Bandaríkjadollurum stolið.
Ferðamaðurinn lýsir reynslu sinni í Reddit-hópnum Visiting Iceland.
Í færslunni segir maðurinn að bíllinn hafi verið á bílastæði við Gullfoss þegar einhver óprúttinn aðili braust inn í hann og hafði á brott með sér pening og debetkort.
„Fékk svo meldingu stuttu síðar um færslu upp á 120 evrur á debetkortinu,“ segir maðurinn og bætir við að sem betur fer hafi þeir látið vegabréfin í bílnum í friði.
„Við lögðum fram kæru hjá lögreglunni á Selfossi. Ferðin var frábær og þetta var síðasti dagurinn okkar. Við bjuggumst ekki við að svona myndi gerast á Íslandi,“ segir hann.
Tók hann fram að með færslunni vildi hann einfaldlega hvetja aðra ferðamenn til að vera með augun opin, enda geti þjófar látið til sín taka hvar og hvenær sem er.
Færslan hefur vakið talsverð viðbrögð og benda einhverjir á að þjófagengi hafi herjað á ferðamannastaði hér á landi síðustu misseri. Þá benda sumir á að það borgi sig aldrei að skilja eftir verðmæti í bílnum eða vegabréf.
„Ísland er frábært land, en það er enginn staður í heiminum sem er alveg laus við vandaða einstaklinga og einhverja glæpastarfsemi. Þess vegna myndi ég aldrei skilja eftir reiðufé, greiðslukort eða vegabréf í mannlausum bíl – hvar sem er, þar á meðal á Íslandi. Og enginn annar ætti heldur að gera það,“ segir einn.