Embætti landlæknis gerir miklar athugasemdir við aðbúnað á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.
Landlæknir skilaði nýverið skýrslu um úttekt á Hraunbúðum eftir tilkynningu um alvarlegt atvik á stofnuninni. Grunur var um að andlát konu á tíræðisaldri hefði borið að með saknæmum hætti en rannsókn málsins hefur verið felld niður. Eyjafréttir greindu fyrst frá.
Í skýrslunni eru gerðar athugasemdir við mönnun á Hraunbúðum. Hlutfall hjúkrunarfræðinga er 12% samanborið við 20% lágmarkshlutfall til að tryggja öryggi íbúa. Æskilegt hlutfall er 27%.
Þá er hlutfall faglærðs starfsfólks í heildina langt undir því sem æskilegt er. Hlutfall faglærðs starfsfólks á Hraunbúðum er 27% en lágmarkið er 57% og æskilegt hlutfall 78%. Fjöldi umönnunarklukkustunda á hvern íbúa er þó innan viðmiða.
Í skýrslunni segir að ónóg fagmönnun feli í sér hættu á að gæðum þjónustunnar sé ógnað. Hún hafi í för með sér að ófaglært starfsfólk axli of mikla ábyrgð án þess að hafa næga þekkingu og þjálfun.
Ekki hægt að koma rúmum út úr herbergjum
Verulegir annmarkar eru á húsnæði Hraunbúða samkvæmt skýrslunni. Heilbrigðisstofnun Suðurlands leigir húsið af Vestmannaeyjabæ. Húsið var reist árið 1973 sem bráðabirgðahúsnæði eftir Heimaeyjargosið og er enn að mestu upprunalegt. Víða má sjá merki um leka, gólfdúkur er farinn að bylgjast og málning að flagna af handriðum. Baðaðstaða og baðtæki eru komin til ára sinna, segir í skýrslunni.
Þá er ekki hægt að koma rúmum út um herbergisdyr íbúa ef rýma þyrfti húsið.
Í skýrslunni segir að fylgja þurfi eftir að nauðsynlegar úrbætur verði gerðar og tryggt að húsnæðið uppfylli kröfur um brunavarnir.
Vantraust í garð stjórnenda
Landlæknir gerði einnig úttekt á starfsumhverfi Hraunbúða. Í könnunum hefur komið fram að starfsánægja hafi verið undir viðmiðum og minni en hjá HSU almennt. Í viðtölum við starfsfólk kom fram að töluverður samskiptavandi væri milli starfsmanna og að vantraust ríkti í garð stjórnenda. Það horfði þó til betri vegar. Starfsmannavelta síðustu þrjú ár hefur verið 35%.
Landlæknir setur fram átta ábendingar og sjö tilmæli til stjórnenda Hraunbúða og HSU. Landlæknir hefur óskað eftir úrbótaáætlun frá stjórnendum Hraunbúða fyrir 1. september 2026 og framgangsskýrslum í desember 2026 og mars 2027.