Brúðkaup tónlistarkonunnar Taylor Swift og NFL-kappans Travis Kelce, fór fram á föstudaginn og höfðu margir beðið þess með eftirvæntingu enda hefur tónlistarkonan árum saman sungið um raunir sínar í ástarmálum og draum sinn um að ganga í hjónaband. Flestir töldu að brúðkaupið yrði gífurlega íburðarmikið og engu til sparað en raunin var víst önnur ef marka má fréttir DailyMail um viðburðinn.
Fannst lítið til „brúðkaups ársins“ koma - Gestir lýsa óreiðu, flokkadrætti, biðröðum og smekkleysi