Maður sem var vistaður á fangelsinu á Hólmsheiði lést í nótt.
Þetta staðfestir Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri í samtali við mbl.is. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá.
Samkvæmt heimildum mbl.is afplánaði maðurinn dóm fyrir manndráp.
Ragna segir að unnið sé að því að ná í aðstandendur mannsins.
Hún kveðst ekki geta tjáð sig frekar um málið að svo stöddu. Í frétt Rúv segir að samkvæmt heimildum miðilsins sé grunur um sjálfsvíg.
Ragna segir alla slegna þegar svona mál koma upp og þá sé mikilvægt að taka vel utan um fanga og fangaverði.
Umboðsmanni Alþingis hefur verið tilkynnt um andlátið á grundvelli OPCAT-eftirlitsins, sem er eftirlit með aðstæðum frelsissviptra.
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta-samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og sorgarmidstod@sorgarmidstod.is, síma Píeta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.
Uppfært 11:50
Fréttin hefur uppfærð með frekari upplýsingum frá fangelsismálastjóra.