Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

GrafarvogskirkjaBúið er að mála yfir regnbogafánann
Lögreglan hefur hafið rannsókn á eignarspjöllunum sem urðu við Grafarvogskirkju en þar var málað yfir regnbogafána á tröppum kirkjunnar.
Spellvirkjarnir máluðu yfir fánann með íslensku fánalitunum síðastliðna nótt og er málið rannsakað sem hatursglæpur.
Samkvæmt lögreglunni hefur hún undir höndum myndefni þar sem tveir aðilar sjást við verknaðinn en rannsókninni miðar vel en lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.