Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

Einbýlishús við Tjarnarstíg 9 á Stokkseyri hefur verið sett á sölu fyrir 109,9 milljónir króna. Húsið er rúmlega aldargamalt, byggt árið 1910, og er skráð 229,8 fermetrar að stærð samkvæmt fasteignaskrá.
Um er að ræða rúmgóða eign þar sem ýmis eldri einkenni hússins blandast saman við nýlegri innréttingar. Athygli vekur meðal annars mikil lofthæð í borðstofu og stofu, eða um fjórir til fimm metrar.
Í húsinu eru tvö rúmgóð svefnherbergi, borðstofa, stór stofa og sjónvarpsherbergi, eldhús, búr og baðherbergi. Eldhúsið hefur verið endurnýjað og þar er meðal annars sérsmíðaður skenkur frá Fríform. Baðherbergið er sömuleiðis nýlegt og búið innréttingum frá sama framleiðanda.
Þvottahús og anddyri eru með sérsmíðuðum innréttingum og þaðan er útgengt í stóran garð við húsið.
Við eignina er einnig rúmgóður flísalagður bílskúr með millilofti. Fyrir aftan bílskúrinn hefur verið innréttað sérstakt rými með baðherbergi, salerni og handlaug.
Fram kemur í sölulýsingu að lekið hafi inn með hurð bílskúrs síðasta vetur. Talið sé að komið hafi verið í veg fyrir lekann, en skoða þurfi veggflísar og hurðir nánar.
Ásett verð eignarinnar er 109,9 milljónir króna.