Liðið hefur yfir fjölda farþega á járnbrautarleiðinni Vestfoldbanen í Noregi, sem liggur milli Óslóar og byggðarlaganna suður af borginni, vegna yfirfullra vagna og súrefnisleysis þar um borð og er nú svo komið að fylkismaðurinn í Vestfold, Anne Strømøy, hefur tekið málið í sínar hendur.
Gagnrýnir fylkismaður Jon-Ivar Nygård samgönguráðherra harðlega og eins rekstraraðila járnbrautarinnar, Vy, áður NSB, og leggur til að afsláttur verði veittur af fargjöldum vegna mikilla óþæginda farþega.
Einkum kveður rammt að ástandinu í lestinni milli Tønsberg ogÓslóar á morgnana en hana tekur fjöldi fólks búsett í Tønsberg sem starfar í höfuðborginni. Sagði lestarfarþeginn Eivind Hjelle frá Nøtterøy, eyju sem liggur sunnan Tønsberg, norska ríkisútvarpinu NRK frá óþægilegum þriðjudagsmorgni eftir hvítasunnu.
Segir hann að lestin þann morgun hafi aðeins dregið fimm vagna í stað þeirra tíu sem hún venjulega telur og séu vagnarnir almennt fullnýttir þótt tíu séu.
Hneig niður og fékk höfuðhögg
Ástandið hafi því verið orðið verulega þungt þegar komið var frá Tønsbergtil Skoppum og Holmestrand sem eru næstu stopp á leiðinni eftir að farið er frá Tønsberg. Farþegar hafi þá verið sem síld í tunnu í vögnunum og þrátt fyrir að þeir sem sæti höfðu hafi sýnt mikla lipurð við að bjóða eldra fólki og óléttum konum sæti sín hafi verið ómögulegt að átta sig á hverja fleiri væri svo ástatt um að þeim væri hollara að sitja en standa í lestinni.
Eftir að lestin ók af stað frá Drammen hafi svo liðið yfir ungan mann, sem stóð skammt frá Hjelle og hann rekið höfuðið óþyrmilega í þegar hann féll í gólfið. Læknir og hjúkrunarfræðingur í lestinni hefðu komið manninum til aðstoðar þegar þau loks komust til hans fyrir þrengslum og lestin svo stöðvað í Asker á meðan beðið var eftir sjúkrabifreið.
Segir Hjelle að farþegum hafi þá verið gert að skipta yfir í lestina til Lillehammer sem var þéttsetin fyrir og var sú lest ekki komin lengra en til Sandvika, skömmu áður en komið er til Óslóar, þegar leið yfir annan farþega og þurfti sú lest þá einnig að stoppa og bíða eftir sjúkrabifreið.
„Ótrúlegur hroki“
Åge Christoffer Lundeby upplýsingafulltrúi Vy biðst afsökunar í bak og fyrir í samtali við NRK. Fyrirtækið hafi átt í miklum erfiðleikum með að fá næga vagna frá viðhaldsverkstæðinu í Skien og færri vagnar því fylgt hverri lest. Nú sé unnið að því að auka afköst verkstæðisins auk þess að fá aukalestur af öðrum lestarleiðum.
Strømøy fylkismaður kveðst hafa sent samgönguráðherra bréf vegna ástandsins þegar í mars en því hafi enn ekki verið svarað. „Það finnst mér ótrúlegur hroki, þetta gengur ekki,“ segir hún við NRK.
Gerir Strømøy tillögu um að fargjald verði lækkað þar til Vy geti boðið lestir með fullri afkastagetu. „Að greiða fullt verð á meðan ástandið er svona er óboðlegt. Ég held að fjárhagslegar afleiðingar gætu orðið til þess að flýta fyrir lausn sem er hentugri íbúum í Vestfold,“ segir fylkismaður.
Cecilie Knibe Kroglund, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu, segir við NRK að ótækt sé að fólk falli í öngvit í troðfullum lestum. Hins vegar geti fylkismaðurinn í Vestfold kennt eigin þingflokki um, Hægri, þar sem sá flokkur hafi greitt atkvæði gegn þeirri hugmynd ríkisstjórnarinnar að sameina krafta Vy og fluglestarinnar Flytoget til að ná fram betri nýtingu sem hefðu orðið mestu úrbætur á hag lestarfarþega í Austur-Noregi í tólf ár.
NRK
NRK-II (farþegar komust ekki um borð fyrir þrengslum)
Tønsbergs Blad (krefst áskriftar)