Íslenska flugfélagið Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins. Icelandair hóf að fljúga til Færeyja í maí 2024 og hefur flugleiðin verið vinsæl frá upphafi. Flogið verður þrisvar sinnum í viku yfir vetrartímann, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, og tengist áfangastaðurinn vel við leiðakerfi Icelandair til og frá Keflavíkurflugvelli. Flugtími er ein klukkustund og 45 mínútur.
„Færeyjaflugið fór strax vel af stað og frá upphafi var markmiðið að stefna að flugi allt árið. Það er því mjög ánægjulegt að tilkynna um heilsársflug nú aðeins tveimur árum eftir að við byrjuðum að fljúga þangað. Færeyjar eru einstakur og vaxandi áfangastaður sem hefur upp á margt að bjóða fyrir okkar viðskiptavini. Tengsl Færeyja og Íslands eru sterk og með heilsársflugi viljum við styðja enn frekar við þau, um leið og við opnum á frekari tækifæri til tenginga við Norður-Ameríku,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, í fréttatilkynningu.
Færeyjar eru í vexti sem ferðamannastaður og hafa upp á margt að bjóða. Þar er að finna stórbrotna og óspillta náttúru. Færeyjar eru vinsælar jafnt fyrir einstaklinga sem hópa og hafa lengi notið vinsælda meðal Íslendinga enda er þessi frændþjóð okkar þekkt fyrir einstaka gestrisni og matarmenningu.
Flugið milli Íslands og Færeyja gegnir einnig mikilvægu hlutverki í að tengja Færeyjar við Norður-Ameríku í gegnum Ísland og hefur Icelandair fundið fyrir auknum áhuga á þeim tengingum, ekki síst frá bandarískum ferðamönnum sem vilja heimsækja bæði Ísland og Færeyjar í einni ferð.
