Atli Heiðar Gunnlaugsson hefur stigið fram undir nafni sem faðirinn sem óskaði eftir undanþágu fyrir barn sitt frá hinseginfræðslu í Vesturbæjarskóla. Hann segist hafa ákveðið að stíga fram eftir skoðanagrein Ingileifar Friðriksdóttur, aðstoðarmanns utanríkisráðherra, þar sem hún gagnrýndi foreldra sem vilja undanþágu frá slíkri fræðslu.
Í aðsendri grein á Vísi segir Atli Heiðar að Ingileif hafi ekki upplýst lesendur um að hún sé höfundur bókar um hinsegin málefni sem kennd sé í Vesturbæjarskóla.
„Ingileif á beinna hagsmuna að gæta í málinu. Hún er höfundur bókar um „hinsegin“ sem kennd er í Vesturbæjarskóla. Að sjálfsögðu getur hún þess ekki í Vísisgreininni,“ skrifar hann.
Bækurnar sem blaðamaður fann eftir hana eru Vertu þú, tvær bækur um Úlf og Ylfu og Ljósbrot en ekki hefur verið staðfest hvaða bók það er sem Atli Heiðar er að vísa til.
Ingileif stofnaði einnig fræðsluvettvanginn Hinseginleikann ásamt Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmanni Viðreisnar. Samkvæmt lýsingu verkefnisins er tilgangur þess meðal annars að „opna umræðu og aftabúvæða alls kyns hugmyndir um hvað það er að vera hinsegin“ og fræða ungmenni um hinseginleikann.
Segist hafa stigið fram vegna greinar Ingileifar
Málið hefur vakið mikla athygli síðustu vikur eftir að Nútíminn greindi fyrst frá því að foreldrar barns í 4. bekk hefðu farið fram á undanþágu frá kennslu sem byggði á efni frá Samtökunum ’78. Foreldrarnir vísuðu meðal annars til trúar- og sannfæringarfrelsis og sögðu fræðsluna stangast á við lífsskoðanir sínar.
Þegar beiðninni var hafnað tóku þau barnið tímabundið úr skóla og hófu heimakennslu á meðan erindi þeirra væri til meðferðar hjá Reykjavíkurborg.
Í skoðanagrein sinni sagði Ingileif að gagnrýni á hinseginfræðslu og regnbogafánann gæti skapað hættulega orðræðu og tengdi umræðuna meðal annars við Miðflokkinn.
„Fyrir börnin mín er orðræða þeirra sem vilja útiloka hann hættuleg,“ skrifaði hún meðal annars um regnbogafánann.
Atli Heiðar segir að það hafi verið þessi grein sem varð til þess að hann ákvað að stíga fram opinberlega með málið.
Vísir segir afstöðu hans „í meira lagi umdeilda“
Í nýrri umfjöllun Vísis um málið vekur einnig athygli hvernig fjallað er um afstöðu Atla Heiðars til kynjafræði. Þar segir að skoðun hans, að kyn mannsins séu aðeins tvö, sé „í meira lagi umdeild“.
Segir fjölskylduna aðeins vilja undanþágu
Í lok greinarinnar segir Atli Heiðar að hann fari ekki fram á að öðrum börnum verði meinað að fá slíka fræðslu heldur aðeins að tekið verði tillit til sannfæringar fjölskyldunnar. Foreldrarnir hafa áður sagt að þau telji fjölbreytileika ekki geta verið einstefnu og að réttur þeirra til að ala barn sitt upp samkvæmt eigin sannfæringu eigi einnig að njóta verndar.
Enginn vildi svara spurningum um efnið
Blaðamaður hringdi í Vesturbæjarskóla til að staðfesta hvort einhver af bókanna væri kennd þar en skólastjóri vildi ekki svara heldur benti á skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.
Skóla- og frístundasvið svaraði ekki spurningum blaðamanns áður en fréttin var unnin en sagðist ætla að senda svör í tölvupósti. Svörin verða birt ef þau berast
Ingileif svaraði hvorki símtali né tölvupósti áður en fréttin var birt. Svör hennar verða birt ef þau berast.