Rússar virðast byggja upp hernaðargetu sína nálægt landamærum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Sameiginleg rannsókn norrænna ríkisfjölmiðla og eistneska miðilsins Delfi sýnir breytingar á að minnsta kosti fimm stöðum frá árinu 2022.
Við verðum í beinni útsendingu frá bökkum Vatnsdalsár, þar sem Eric Clapton er fastagestur á hverju sumri, og tökum stöðuna á laxveiðisumrinu með Kristjáni Má Unnarssyni.
Þá fjöllum við um falska aðganga, þjarka og skipulagða upplýsingaóreiðu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar reyni að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB.
Og Oddur Ævar ræðir við bandaríska vísindamenn frá NASA, sem verða með umfangsmikið verkefni hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn verður í hámarki.
Í Ísland í dag kíkjum við í heimsókn í hesthúsið hennar Áslaugar Örnu og förum á trúnó með fyrrverandi ráðherranum sem sagði af sér þingmennsku í síðustu viku. Við ræðum ferilinn og framtíðina á meðan Tómas Arnar skellir sér í reiðtúr með Áslaugu sem ríður út sólsetrið og kveður svið þingsins.
Þetta og meira til í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis á slaginu hálf sjö.