„Ljósanótt gekk almennt vel,“ segir Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum.
Hún segir þó lögreglumenn ekki hafa mátt vera færri. Vegna góðviðris í gær var mikið af fólki saman komið og talsvert um ölvun meðal ungmenna.
Ljósanótt er í Reykjanesbæ um helgina. Hátíðin er haldin fyrstu helgina í september ár hvert. Hátíðin náði hápunkti sínum í gær með stórtónleikum og flugeldasýningu.
Ungmenni viðriðin líkamsárásir
Verkefni lögreglu voru mörg eftir að formlegri dagskrá lauk í gærkvöldi.
Tvær líkamsárásir eru á borði lögreglu eftir nóttina. Ungmenni undir 18 ára aldri voru viðriðin þær báðar.
„Það var kastað glerflösku í lögreglumann, ein árásin, og hin er alvarleg líkamsárás, það er að segja verknaðurinn en afleiðingarnar ekki – sem betur fer,“ segir Bjarney.
Sparkað var í liggjandi ungmenni, meðal annars í höfuð þess.
Fjórir gista í fangageymslu eftir nóttina, meðal annars vegna líkamsárása og ölvunar. Fleiri voru handteknir. Tveir sem tengdust annarri árásinni voru fluttir á Stuðla.
Þá hafði lögregla samband við foreldra þó nokkurra barna eða þau keyrð heim.
„Man ekki eftir svona mannfjölda“
Bjarney segir að það breyti miklu þegar veður er gott. Það hafi bæði í för með sér mikla gleði en þá sé einnig líklegra að fólk byrji að drekka fyrr og sé lengur.
„Þetta er örugglega stærsta Ljósanótt sem ég man eftir síðustu 25 árin – eða með þeim stærstu. Ég man ekki eftir svona mannfjölda.“
Hún ítrekar að hátíðin hafi gengið vel almennt. „Við erum mjög ánægð með þetta. Við leggjum mikla vinnu í að Ljósanótt gangi í samstarfi við brunavarnir, bæinn okkar og björgunarsveitirnar. Við gætum ekki án þeirra verið í svona verkefni.“