Erfitt að full­yrða nokkuð um or­saka­sam­hengi milli 4G og fæðingar­tíðni - Vísir

Erfitt að full­yrða nokkuð um or­saka­sam­hengi milli 4G og fæðingar­tíðni - Vísir

Erfitt að full­yrða nokkuð um or­saka­sam­hengi milli 4G og fæðingar­tíðni - Vísir

Tilefnið eru ummæli Lilju Alfreðsdóttur, formanns Framsóknar, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um að tengsl séu á milli innleiðingar 4G og lækkandi fæðingartíðni á heimsvísu. Með innleiðingu 4G hafi fólk í fyrsta sinn komist á hratt þráðlaust internet, hvar og hvenær sem er og í það fari því meiri tími en í félagsleg samskipti auglitis til auglitis.

Vísar hún í umfjöllun Financial Times þar sem vísað er í nýlega rannsókn á málinu þar sem fram kemur að ýmislegt bendi til þess að aukin tækninotkun sé eitt af því sem hafi áhrif á fæðingartíðni meðal ungmenna. Fylgir Lilja þar eftir grein sinni í Morgunblaðinu undir yfirskriftinni „Tæknin lækkar fæðingartíðni.“

Rannsökuðu tengsl milli fæðingartíðni og notkunar tækni

„Í nýrri stórmerkilegri rannsókn eftir Hudson og Moscoso-Boedo, sem fjallar um hríðlækkandi fæðingartíðni hjá ungmennum í hinum stafræna heimi (e. The Collapse of Teen Fertility in the Digital Era), kemur í ljós að tæknin skiptir sífellt meira máli. Höfundarnir sýna fram á að þar sem 4G og snjallsímar náðu fyrst fótfestu lækkaði fæðingartíðni hraðast,“ skrifar Lilja í Moggann. 

„Ungt fólk ver nú mun meiri tíma á netinu en í félagslegum samskiptum augliti til auglitis. Rannsóknin bendir til þess að þegar samskipti færast yfir á skjáinn minnki ekki aðeins félagsleg tengsl heldur einnig líkurnar á því að fólk stofni fjölskyldu.“

Lilja ræðir málið enn fremur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.  Þar er hún spurð nánar út í greinina.

Þú ert með áhugaverða grein í Morgunblaðinu í dag sem ber yfirskriftina: Tæknin lækkar fæðingartíðni, hvert ertu að fara með þessu?

„Það er þannig að eitt stærsta viðfangsefni samtímans, ekki bara hér á landi, heldur um alla veröld er hríðlækkandi fæðingartíðni. Og þegar fæðingartíðni, þegar það dregur svona mikið úr, og ég nefni til að mynda bara hér á Íslandi, þá er þetta þannig að á sirka svona rúmum tíu árum hefur dregið úr henni um sirka tuttugu prósent, farið úr held ég 1,96 barni á hverja konu í 1,53. Og þetta gerist mjög hratt.“

Ertu búin að finna sökudólginn?

„Ég er ekki búinn að finna hann, skal ég segja ykkur, en þetta er svona eitt af því sem við hagfræðingar höfum mikinn áhuga á vegna þess að það sem gerist að það verður minni hagvöxtur, minna vinnuafl og þetta er mjög líklegt til þess að þrengja að velferðarkerfinu okkar vegna þess að það verða þá færri vinnandi hendur til að styðja við heilbrigðisþjónustuna okkar og áhrifin koma síðar fram,“ segir Lilja.

„Einn vandinn til að mynda, þar sem ég þekki mjög vel til þar sem ég lærði á sínum tíma í Suður-Kóreu, er að þar eru til að mynda sumir háskólar að verða tómir af því að þetta er búið að gerast mjög hratt. Það eru auðvitað mjög margir sem hafa verið að rannsaka þetta en það var mjög áhugaverð rannsókn sem Financial Times var að fjalla um í síðustu viku og ég geri svolítið mat úr þessu í þessari grein en þar eru það Hudson og Moscoso sem komast að því að þetta tengist símunum okkar.“

Bíddu, hvernig þá?

„Það er þannig að þeir hafa fundið það út, það eru margir þættir sem hafa áhrif á þetta, en ein skýr breyta í þessu er að þar sem 4G hefur komið þá kemur oft, ekki bara hér heldur mjög víða, þá hefur, vilja þeir meina, fæðingartíðni lækkað.“

Eru tengsl þarna á milli?

„Það eru tengsl þarna á milli. Auðvitað er húsnæðisþáttur, hann skiptir miklu máli, en þarna sé ákveðin orsök sem þeir vilja meina að skipti máli. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa um þetta er vegna þess að það er alveg ljóst að við, til að mynda minn flokkur, viljum hlúa mjög vel að heimilum og fjölskyldum þessa lands. Og það er ekkert hægt að horfa fram hjá þessu, hvað er að gerast hér líka.“

Lilja segist alltaf hafa talað fyrir því í stjórnmálum að horfa á staðreyndir og taka ákvarðanir út frá þeim. Hér sé ein staðreynd á ferð, að fæðingartíðni á Íslandi hafi lækkað verulega.

Þá í tengslum við innleiðingu á 4G?

„Ja, eitt af því sem við sjáum sem kemur fram í þessari rannsókn er að þetta er mjög líklega ákveðin breyta. Af því að það sem þeir sjá er að samskipti hafa breyst í kjölfar mikillar notkunar á tækninni. Og það sem ég er bara að segja líka: Við þurfum að horfa á alla þessa þætti, því niðurstaðan er fyrir framan okkur og það er tuttugu prósenta lækkun á yfir svona tíu ára tímabili á Íslandi og það sama er að gerast annars staðar. Það eru aðrir þættir sem við þurfum auðvitað að huga að og það er til að mynda það sem við munum þurfa og ég hef lagt mikla áherslu á og það er húsnæðisuppbygging.“

Vandinn flókinn og margþættur

Vísir bar hugleiðingar Lilju undir Sunnu Kristínu Símonardóttur, lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, sem rannsakað hefur fæðingartíðni um árabil. Hún segir margt rétt sem Lilja bendir á en setur spurningamerki við vísun hennar í umrædda fræðigrein.

„Það er margt sem hún segir rétt, það eru náttúrulega alls konar mismunandi ástæður fyrir þessu, en greinin sem hún vísar í er um leið veikasti hlekkurinn í röksemdafærslunni vegna þess að í greininni er sérstaklega verið að skoða táningsþunganir, börn upp í nítján ára að aldri. Fæðingartíðni hjá þessum aldurshópi hefur farið lækkandi og það er þróun sem hefst löngu fyrr, löngu áður en símarnir komu inn í líf okkar og skemmdu það. Í íslensku samhengi hefur fæðingartíðni hjá unglingum farið lækkandi frá 1970.“

Sunna hefur rannsakað fæðingartíðni um árabil.

Þá bendir Sunna á að fræðigreinin hafi ekki enn verið ritrýnd. Það þýði að ekki sé búið að meta gæði rannsóknarinnar, aðferðafræði, gögn og niðurstöður svo hægt sé að tryggja fræðilegan áreiðanleika.

„Svo er það alltaf þessi spurning um það hvað er orsök og hvað er fylgni, að gera greinarmun á því að tveir hlutir geta gerst á sama tíma án þess að þeir séu að valda hvor öðrum.“

Er þá of snemmt að kenna snjallvæðingunni, innleiðingu 4G og notkun snjallsíma um lækkandi fæðingartíðni?

„Algjörlega. Ég held það sé aldrei að fara að vera ein meginskýring á þessu. En aftur á móti er þessi símavæðing, þetta að vera alltaf tengdur, innkoma iPhone-sins í okkar líf, auðvitað hafði þetta grundvallaráhrif á ótrúlega margt, okkar samskipti, hvernig við pörumst við aðra, leitum upplýsinga, þessi sítengdi veruleiki getur haft alls konar áhrif, meðal annars á viðhorf okkar til framtíðarinnar, hvort við upplifum heiminn öruggan eða óöruggan. Maður vill alls ekki vanmeta það að þetta hafi alls konar áhrif en það er mjög mikil einföldun að hengja fæðingartíðni bara við þessa tilteknu breytingu.“

Ísland tíu árum á eftir Norðurlöndum

Sunna segir fæðingartíðni á Íslandi hafa farið lækkandi ár frá ári árin eftir efnahagshrun. Á síðasta ári hafi hún staðið í stað. Um sé að ræða nákvæmlega sömu þróun og á hinum Norðurlöndunum, nema tíu árum síðar.

„Er þetta eitthvað til að hafa áhyggjur af? Ekki eins og er á Íslandi. Okkur er ekki að fækka heldur fjölga, því við erum svo heppin að hér er fullt af fólki sem vill flytja til Íslands og mér finnst það vera eitthvað sem við mættum vera meira vakandi fyrir, því staðreyndin er sú að við þurfum á þessu fólki að halda til að reka hér samfélag. Þetta er ekki eitthvað til að hafa áhyggjur af en við þurfum að skilja hvað veldur, það er eitthvað í okkar samfélagsgerð og það væri hægt að gera betur þannig að fólk sem vill eignast börn á annað borð upplifi að það sé fært um það.“

Hún segist skilja vel stöðu stjórnmálamanna sem oft leiti að einföldum svörum við vandamálum. Rannsóknir hafi hins vegar sýnt fram á að það séu margar ástæður fyrir því að fæðingartíðni lækkar og þær séu af margs konar toga, meðal annars menningarlegar.

„Hvernig fólk hugsar um líf sitt, hvernig það horfir til framtíðar, margar rannsóknir núna sýna að ungt fólk upplifir framtíðina kvíðvænlega, upplifir óöryggi og þá ertu ekki endilega líklegur til að eignast barn. Þá hefur það komið fram í okkar rannsóknum að foreldrahlutverkið er orðið erfiðara og meiri pressa á fólk að standa sig vel og gera allt rétt. Kröfurnar eru miklar og jaðra við fullkomnun sem veldur því að margir hugsa með sér hvort þeir séu tilbúnir til að verða þessi týpa af mömmu eða pabba?“ segir Sunna.

„Mér finnst persónulega rannsóknarviðfangsefni sem eru svona flókin og með svona margar tengingar við alls konar mismunandi breytur áhugaverð en fyrir stjórnmálamenn býður þetta kannski ekki endilega upp á spennandi svör. Þau vilja konkret svör, það þurfi bara sem dæmi að hækka barnabætur til að leysa vandann, á meðan staðan er sú að margar þjóðir hafa gripið til sértækra aðgerða til að reyna að hækka fæðingartíðnina, veitt skattaafslátt eða barnabætur en engin af þessum aðgerðum hefur haft nokkur áhrif. Það segir okkur líka hvað þetta er ótrúlega flókið.“

#erfitt #fullyrða #milli #nokkuð #orsakasamhengi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889946d/erfitt-ad-fullyrda-nokkud-um-orsakasamhengi-milli-4g-og-faedingartidni

📰 Aðrar fréttir

Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 1
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...
Anti-government protesters battle with police in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 1
Anti-government protesters battle with police in Albania
There were violent clashes between demonstrators and riot police throughout Saturday in the capital Tirana.
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
📅 17.10.2026 👁️ 1
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmælt...
„Verið að spila með líf fólks“
📅 17.10.2026 👁️ 1
„Verið að spila með líf fólks“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka at...
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamikli...
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
📅 17.10.2026 👁️ 2
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótun og barnaverndarbrot samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem féll þa...
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
Ari tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hefur gegnt formennsku frá því í febrúar á þessu ári. Í stjórn voru einnig kjörin Elísabet Freyja Úlfarsdóttir...
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
Jakob Hansen aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kaupmannahöfn segir við danska ríkisútvarpið að lögreglumenn hafi handtekið tvo hvorn í sínum mótmælum við Kó...
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
📅 17.10.2026 👁️ 2
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
Tveir drengir undir 18 ára að aldri eru í haldi grunaðir um tilraun til manndráps eftir að ung kona var skotin í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænska ríkisú...
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
📅 17.10.2026 👁️ 3
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
Au pair er franska og gæti sem best þýtt jafningi á íslensku. Hugtakið er notað yfir ungt fólk, aðallega konur, sem sækjast eftir vist hjá fjölskyldum...
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
📅 17.10.2026 👁️ 2
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
The Israeli military condemns the violence but the prime minister's office says it is part of a "smear" campaign.
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
📅 17.10.2026 👁️ 2
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig Fréttin17. október 2026Dómsmál, ErlentLeave a Comment Bro...
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
„Já, það er mjög hvasst hérna og líka byrjað að rigna. Þetta er nánast orðið að stormi,“ sagði Marim, starfsmaður á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík. H...
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
📅 17.10.2026 👁️ 2
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
BBC Scotland's political editor Glenn Campbell reflects on John Swinney's SNP conference speech.
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbra...
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
Ísraelskt landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra í þorpinu Taybeh í dag. Landtökufólk herjar reglulega á íbúa í þorpinu. Bernard B...
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 17.10.2026 👁️ 4
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið á...
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 3
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöldi að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að tilkynning hafði borist um s...
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
Í grein sinni bendir Björg Eva til að byrja með á að gagnaverið At-north á Íslandi hafi nýlega birt leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagna...
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
Orðið á götunni er að Marta María Winkel í Smartlandi Morgunblaðsins hafi hitt naglann á höfuðið er hún skrifaði um sundferð fimm þingmanna stjórnaran...
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
Umræddur dómur var kveðinn upp í Landsrétti í gær. Karlmaður, sem áður hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, var ákærður í annað sinn fyrir nauðgun og dæm...
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
📅 17.10.2026 👁️ 5
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
Franskur mótmælandi missti aðra höndina í borginni Saint-Etienne í dag. Þetta var annar mótmælandinn til að missa hönd í álíka aðstæðum í miklum mótmæ...
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
Persónuvernd vekur athygli á yfirlýsingunni í tilkynningu á vef sínum. Þar segir að gleraugun geti verið búin myndavélum og hljóðnemum sem gera notend...
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
Frá árinu 1972 hefur hlaupsekúndu verið bætt við klukkuna 27 sinnum. Nú hafa alþjóðleg samtök um mælieiningar ákveðið að afnema hana og taka upp hlaup...
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
📅 17.10.2026 👁️ 4
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
Fjölmiðlafræðingurinn Íris Erlendsdóttir segir samfélagið okkar gera fáránlegar kröfur til karlmanna, þeir megi varla segja nokkuð sem gæti mögulega s...
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
📅 17.10.2026 👁️ 1
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
Goalkeeper Emiliano Martinez was taken to hospital as Chelsea's 2-0 win at Everton on Saturday meant they secured their first clean sheet in nine mont...
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, fór fy...
Fjórtán mánaða fangelsi fyrir 88 þjófnaðarbrot
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjórtán mánaða fangelsi fyrir 88 þjófnaðarbrot
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjórtán mánaða fangelsi fyrir áttatíu og átta þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar yfir um eins og...
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruð barna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruð barna - Vísir
Atvikið átti sér stað í Heshi Peixin-leikskólanum í Tianshui í Gansu-héraði í júlí á síðasta ári. Allt í einu fór fjöldi barna að veikjast og mældist ...
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna - Vísir
Atvikið átti sér stað í Heshi Peixin-leikskólanum í Tianshui í Gansu-héraði í júlí á síðasta ári. Allt í einu fór fjöldi barna að veikjast og mældist ...
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á hálendinu
📅 17.10.2026 👁️ 4
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á hálendinu
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbra...
Alvarleg líkamsárás á bifreiðastæði á Akureyri - Réðst á manninn sem hann taldi hafa brotið gegn dóttur sinni
📅 17.10.2026 👁️ 4
Alvarleg líkamsárás á bifreiðastæði á Akureyri - Réðst á manninn sem hann taldi hafa brotið gegn dóttur sinni
Karlmaður var með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað á bifreiðaverkstæði á Akureyr...
Kommúnistaflokkur Kína segist vilja auka samstarf við Samfylkinguna um stjórnarhætti
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kommúnistaflokkur Kína segist vilja auka samstarf við Samfylkinguna um stjórnarhætti
Kínverski kommúnistaflokkurinn segist reiðubúinn að auka samstarf við Samfylkinguna og aðra helstu stjórnmálaflokka Íslands um stjórnarhætti og stjórn...
Fjárhagslegt tjón vegna álfta „léttilega“ tugir milljóna
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjárhagslegt tjón vegna álfta „léttilega“ tugir milljóna
Kornbóndi á Suðurlandi segir að fjárhagslegt tjón vegna ágangs álfta á ökrunum geti numið tugum milljóna króna.Hann vill að fólk sem stundar kornrækt ...
Kosningar í USA- Lýðræði eða forsjárhyggjuríki
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kosningar í USA- Lýðræði eða forsjárhyggjuríki
Kosningar í USA- Lýðræði eða forsjárhyggjuríki Fréttin17. október 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, Kosningar, TrumpLeave a Comment Helga Dögg Sve...
Telja eldsvoða með öllu ótengda
📅 17.10.2026 👁️ 4
Telja eldsvoða með öllu ótengda
Aðstandendur Rio Tinto á Íslandi telja enga tengingu vera á milli tveggja eldsvoða í álverinu í Straumsvík. Þar kviknaði í sitt hvorum áltökubílnum me...
Íran segir ofurtankskip hafa rekist á tundurdufl í Hormussundi – gríðarlegur eldur sagður hafa komið upp
📅 17.10.2026 👁️ 4
Íran segir ofurtankskip hafa rekist á tundurdufl í Hormussundi – gríðarlegur eldur sagður hafa komið upp
Íran segir ofurtankskip hafa rekist á tundurdufl í Hormussundi – gríðarlegur eldur sagður hafa komið upp Fréttin17. október 2026ErlentLeave a Comment ...
Þyrlan kölluð út vegna slyss á há­lendinu - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Þyrlan kölluð út vegna slyss á há­lendinu - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í færslu sem birt var á Facebook-síðu lögreglunnar en þar segir að skömmu eftir 20:30 í gærkvöldi hafi viðbragðsaði...
Sigmundur Ernir skrifar: Heimska hægrið snýr klukkunni við
📅 17.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Heimska hægrið snýr klukkunni við
Mynd Víða um jarðir er frelsi, jafnrétti og bræðralag á undanhal
Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“
Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“ Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði, segir feg­urð­ar­skyn fólks byggja á gild­is­mat...
Kannast ekki við lýsingar Jóns - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kannast ekki við lýsingar Jóns - Vísir
Í þætti Spursmála í gær sagði Jón Gnarr, sem sagði sig í vikunni úr þingflokki Viðreisnar, að það andaði köldu milli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur,...
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið í nótt
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið í nótt
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöld ásamt lögreglu og björgunarsveitum á Norðurlandi vegna tilkynningar um slys á hálendinu norðan Vatn...
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöld ásamt lögreglu og björgunarsveitum á Norðurlandi vegna tilkynningar um slys á hálendinu norðan Vatn...
Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu - Vísir
„Ég bjóst við að fá svona svar eftir kannski svona eitt, tvö ár eða eitthvað,“ segir Ylfa í samtali við blaðamann Vísis en hún hafi verið mjög hissa á...
Páfi útskrifaður af sjúkrahúsi
📅 17.10.2026 👁️ 4
Páfi útskrifaður af sjúkrahúsi
Leó XIV páfi var útskrifaður af sjúkrahúsi í dag. Hann gekkst undir aðgerð vegna lungnakrabbameins á þriðjudag þar sem hluti annars lungans var fjarlæ...
Mót­mælendur réðust inn í ráð­húsið í Marseille - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Mót­mælendur réðust inn í ráð­húsið í Marseille - Vísir
Lögreglumenn hafa beitt mótmælendur táragasi í París, Bordeaux og Lyon samkvæmt vef BBC. Þar kemur einnig fram að myndefni frá AFP-fréttastofunni sýni...
More NHS staff sacked over Nottingham attacks victims' records
📅 17.10.2026 👁️ 4
More NHS staff sacked over Nottingham attacks victims' records
Nottingham University Hospitals NHS Trust says a new system will be brought in to protect records.
Passenger airlifted from Scarlet Lady cruise ship near Tenerife
📅 17.10.2026 👁️ 4
Passenger airlifted from Scarlet Lady cruise ship near Tenerife
A 62-year-old American woman was airlifted from a cruise ship off Tenerife during a medical evacuation in the early hours of this morning, Saturday 17...
Violent clashes between police and protesters in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Violent clashes between police and protesters in Albania
Police in Albania's capital Tirana have fired tear gas and water cannons onto crowds gathered outside the Ministry of Education where students are amo...