Slökkviliðið í Orange-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum keppir nú við tímann við að tryggja að yfirfullur þrýstitankur, sem inniheldur 26.500 lítra af metýlmetakrýlati, springi ekki.
Það hefur reynst afar erfitt að leysa úr vandanum vegna fyrirbæris sem kallast „stjórnlaus hitamyndun“, þar sem efnið myndar sinn eigin stjórnlausa hita, sem ógnar annaðhvort stórfelldum eiturleka eða skelfilegri sprengingu, að því er segir í umfjöllun Los Angeles Times.
Rýmingarsvæðið í kringum bilaða tankinn í Garden Grove var stækkað til að ná yfir tugþúsundir íbúa í sex borgum í Orange-sýslu: Garden Grove, Cypress, Stanton, Anaheim, Buena Park og Westminster.
Núverandi neyðaráætlun gerir ráð fyrir að sérþjálfaðir hópar fylgist með hitastigi tanksins.
Yfirvöld í borginni hafa sett hitamörk sem kveða á um að allt starfslið verði dregið af svæðinu ef þeim er náð. Tankurinn mun þá annaðhvort springa eða leka þegar hann þenst út og gat kemst á hann.

