Ríkissáttasemjari segir enn langt í land í kjaraviðræðum Icelandair og flugmanna. Fundur fór fram í dag og hefur Ríkissáttasemjari beðið bæði flugmenn og Icelandair að tjá sig ekki við fjölmiðla um kjaraviðræðurnar utan þess sem nauðsynlegt geti talist.
Boðað hefur verið aftur til fundar klukkan 10:00 á morgun.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir lítið hægt að segja til um hvað fram fór á fundinum.
„Þetta eru áframhaldandi tilraunir til að koma samtalinu af stað,“ segir hann. „Það er verið að tala saman um flugvakt og hvíldartíma og alls konar atriði sem varða grundvallaratriði í kjarasamningum og annar hvor aðilinn telur þörf á miklum breytingum,“ segir Ástráður.
„Það eru ekki sammæli um hvaða breytingar það eiga að vera,“ segir hann.
Ekki hefur enn verið boðaður annar fundur í kjaraviðræðum flugvirkja og Icelandair en síðasta fundi var frestað vegna veikinda.
Kjarasamningar Icelandair við flugmenn og Flugvirkjafélag Íslands runnu út í septemberlok. Tíðar aflýsingar á flugferðum hjá Icelandair hafa leitt til þess að flugfélagið taldi flugmenn í óformlegum verkfallsaðgerðum. Því hafa flugmenn hafnað ítrekað.