Aðfaranótt 8. júlí síðastliðinn var málað yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju með íslensku fánalitunum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar verknaðinn sem mögulegan hatursglæp en að sögn Hildar Rúnar Björnsdóttur, lögreglufulltrúa á lögreglustöðinni á Vínlandsleið, hefur lögregla enn ekki haft hendur í hári neins vegna málsins.
Í raun sé ekkert nýtt að frétta í málinu. Það sé enn í fullri rannsókn og lögregla skoði ýmislegt í tengslum við það. Áður hefur verið greint frá því að tveir menn sjáist á upptöku úr eftirlitsmyndavélum kirkjunnar.