Enn einn bikarinn í safnið hjá Karlottu - MBL.IS
📅 2026-07-15 20:41:00
👁️ 0 lesið
Ökukennarinn Karlotta Einarsdóttir er búin að koma sér vel fyrir í sögu Nesklúbbsins á Seltjarnarnesi. Meistaramótum golfklúbbanna hérlendis lauk víðast hvar síðasta laugardag og sigraði Karlotta í meistaraflokki kvenna í 22. skipti.
Er Karlotta þó ekki nema 42 ára en hún landaði fyrsta sigrinum í meistaraflokki aðeins 16 ára gömul árið 2000. Hún segir fyrsta titilinn ef til vill vera þann eftirminnilegasta en erfitt sé að nefna einn sigur sem sé eftirminnilegri en annar eftir 22 sigra.
„Ég var að reyna að rifja upp hvenær ég tók í fyrsta skipti þátt í meistaramótinu í barna- og unglingaflokki en er ekki alveg með það á hreinu. Ef til vill hefur það verið þegar ég var 12 eða 13 ára. Ég þarf eiginlega að kíkja á bikarana í geymslunni til að þreifa mig áfram í því,“ segir Karlotta en hún fór að stunda golf þegar hún var níu ára gömul. Hún hefur alið manninn á Nesinu með einni undantekningu þó.
„Árið 2003 fór ég í Mosó [í Kjöl eins og klúbburinn hét á þeim tíma] í eitt ár en kom strax heim aftur. Ég var nöppuð yfir en þá var gerð tilraun til að vinna sveitakeppnina.“
Meiri yfirvegun en áður
Karlotta lék 72 holur, eða fjóra hringi, á samtals 303 höggum og segir það stundum hafa verið markmið hjá sér að vera á færri en 300 höggum á meistaramótinu.
„Ég myndi segja að ég hafi verið nokkuð öflug síðustu tvö árin og mætt vel á völlinn. En í mörg ár fór tíminn í barneignir og það sem því fylgir. Þá mætti ég stundum nánast beint á meistaramótið. En á móti kemur að maður þroskast með aldrinum og það hjálpar á golfvellinum. Þegar ég var á fullu í afreksgolfinu á yngri árum var ég ekki nógu stöðug og andlegi þáttur leiksins ekki eins góður. Nú fer maður ekki á hliðina þótt maður geri ein mistök á vellinum en þegar maður var yngri lét maður ein mistök eyðileggja næstu tvær holur fyrir sér. Ég velti því stundum fyrir mér að taka aftur þátt í Íslandsmótinu mér til ánægju en ég hef ekki verið með þar síðan í Kiðjaberginu árið 2010.“
Karlotta þekkir vitaskuld hverja þúfu og hvern hól á Nesvellinum. Vallarmetið sem hún setti í fyrra er vitnisburður um það en þá lék hún á 68 höggum. Spurð að því hvort einhver hola á vellinum hafi reynst henni betur en önnur í gegnum tíðina nefnir hún par 5-braut þar sem Atlantshafið er á hægri hönd.
„Sjöunda holan hefur oft verið fuglahola hjá mér þótt það verði erfiðara ef vindurinn blæs á móti. En við góðar aðstæður á ég kannski bara eftir 6- eða 7-járn til að reyna við flötina í öðru höggi. Það eru tvær eða þrjár holur á vellinum þar sem ég hef ekki náð að fá fugl í sumar.“
Þótt meistaramót golfklúbbanna séu jafnan aðra helgina í júlí þá er það ekki ávísun á veðurblíðu hér á eyjunni. Karlotta segist hafa kynnst nánast öllum útgáfum af veðri á mótinu í gegnum tíðina en oftast hafi líklega verið rok og rigning. „Fyrir tveimur árum var fárviðri á laugardeginum og þá vorum við blautar í gegn,“ segir Karlotta og hlær.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.