„Enn ein lygin“ segir mexíkóskur þingmaður sem Bandaríkin ákæra fyrir fíkniefnamisferli
Bandaríska dómsmálaráðuneytið ákærði mexíkóska þingmanninn Enrique Inzunza og níu aðra embættismenn úr stjórnarflokknum Morena og krafðist framsals þeirra. Er þeim gefið að sök að hafa unnið með glæpagengi að dreifingu fíkniefna innan Bandaríkjanna.
Mexíkóskur öldungadeildarþingmaður, sem bandarísk yfirvöld vilja fá framseldan vegna ákæru um fíkniefnasmygl, sagði í gær að hann myndi „aldrei“ gerast verndað vitni fyrir Bandaríkjamenn í þessu fordæmalausa máli.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið ákærði Enrique Inzunza og níu aðra embættismenn úr stjórnarflokknum Morena í apríl og krafðist framsals þeirra vegna meintrar samvinnu við hið alræmda Sinaloa-fíkniefnakartel við dreifingu fíkniefna innan Bandaríkjanna.
Þetta var í fyrsta sinn sem Bandaríkin ákæra sitjandi mexíkóskan stjórnmálamann.
Inzunza hafnaði því að bera vitni fyrir bandarískum yfirvöldum gegn því að njóta verndar: „Þetta er bara enn ein lygin af mörgum sem hafa verið sagðar,“ sagði hann á blaðamannafundi í gær. „Ég mun aldrei nýta mér slíkt.“
Hann sagðist treysta á réttlætið: „Ég er Mexíkói sem treystir stofnunum lands síns.“
Ríkisstjóri hættir
Ruben Rocha Moya, ríkisstjóri Sinaloa, sem er einn þeirra tíu sem hafa verið ákærðir, tilkynnti í síðasta mánuði að hann hygðist láta af embætti. Tilkynningin kom aðeins …