Icelandair telur útilokað að leki frá fragt hafi valdið því að farangur skemmdist í flugferð félagsins til Kaupmannahafnar um helgina. Unnið sé eftir ströngum verklagsreglum þegar kemur að flutningi fisks með farþegavélum og hann aldrei geymdur í sama hólfi og farangur.
Ásdís Elva Kristinsdóttir flaug með Icelandair til Kaupmannahafnar á laugardag. Þegar hún fékk þrjár töskur sínar afhentar eftir flugferðina voru þær blautar og illa lyktandi.
Ásdís Elva taldi leifar af fiski vera utan á töskunum og henti tveimur þeirra og mikið af fötum sem í þeim voru vegna ólyktar.
Engin fragt í þotunni
Í svari við fyrirspurn fréttastofu segist Icelandair harma atvikið.
„Við hörmum að illa lyktandi vökvi hafi komist í snertingu við farangur í flugi FI204 til Kaupmannahafnar þann 11. júlí sl. og biðjum viðkomandi farþega afsökunar.“
Tilvikið sé eingöngu bundið við þetta tiltekna flug. Enn liggi ekki fyrir hvað valdi vondri lyktinni en Icelandair vinni að því að komast til botns í málinu.
„Við erum þó búin að útiloka að um leka frá frakt hafi verið að ræða þar sem engin frakt var flutt með þessu flugi. Þá vinnum við eftir mjög ströngum verklagsreglum varðandi pökkun og meðhöndlun á fiski sem fluttur er með farþegavélunum okkar og er fiskur aldrei í sama hólfi og farangur í breiðþotum, en um var að ræða Boeing 767 breiðþotu í þessu flugi.“