Undanfarnar tvær helgar hafa ungir knattspyrnukappar keppt á TM mótinu í fótbolta, á vegum Stjörnunnar.
Á mótinu keppa börn á aldrinum 4-9 ára, í 6.-8.flokki.
Þúsundir barna tóku þátt í mótinu sem hefur fest sig í sessi sem eitt af stóru mótunum í fótbolta.
Á opinberri upplýsingasíðu mótsins hafa birst færslur þar sem börnunum er þakkað fyrir þátttökuna.
Strákum í 6.flokki var þakkað fyrir komuna með myndskeiði af glæsilegum tilþrifum en stelpum í sama flokki var þökkuð þátttakan með mynd af bangsa.
Í gær var svo þakkað fyrir helgina, þar sem yngstu knattspyrnukapparnir höfðu att kappi, með löngu myndskeiði af tilþrifum stráka.
Engin stelpa sést í myndbandinu.
Gerist trekk í trekk að konur og stelpur séu afgangsstærð
Ingunn Haraldsdóttir, forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna, segir málið vera vonbrigði.
Samtökin hafa það markmið að auka samstöðu, sýnileika, jafnrétti og virðingu kvenna innan íþróttarinnar.
„Þetta er því miður bara fjölmörg dæmi sem sýna að þetta gerist trekk í trekk að konur og stelpur verða einhvern veginn afgangsstærð.“
Ingunn segir að það geti vel verið að málið sé hugsunarleysi, fólk ætli sér ekki að mismuna börnum með þessum hætti.
Sambærileg mál hafa þó komið upp áður, varðandi bikarastærð á mótum og umfjallanir um stelpur í fótbolta.
„Sorglegast líka að sjá þegar það eru litlar stelpur, það er mjög sárt að fá að heyra það og sjá snemma að maður sé einhver afgangsstærð. Þannig þetta er klárlega eitthvað sem við þurfum öll að vera meðvituð um að breyta saman.“
Uppfært: Myndböndin og færslurnar hafa verið fjarlægð af upplýsingasíðu mótsins.