Tvær stúlkur og einn piltur létust þegar bíll þeirra hafnaði utan vegar við Krýsuvíkurveg í nótt. Drengurinn var fæddur árið 2005, en stúlkurnar árin 2007 og 2009.
„Hugur minn er hjá fjölskyldum og vinum þeirra ungu einstaklinga sem létust í hinu hörmulega slysi í nótt sem leið. Engin orð ná utan um slíkan missi,“ skrifar Halla í færslu á Facebook.
Slysið átti sér stað rétt sunnan við gatnamót Krýsuvíkurvegar og Leiðarendavegar og barst lögreglu tilkynning um það rétt eftir miðnætti í nótt. Ungmennin voru öll í bílnum sem hafnaði utan vegar eftir að hafa verið ekið suður Krýsuvíkurveg.
„Þegar sorgin knýr dyra með þessum hætti erum við minnt á hversu dýrmætt og viðkvæmt lífið er. Förum varlega og gætum hvert að öðru,“ bætir forsetinn við í færslunni.
Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka nú tildrög slyssins.
Guðrún Karls Helgudóttir biskup birti einnig í dag færslu með bæn fyrir þeim sem nú eiga um sárt að binda.