Engin lán Landsvirkjunar eru lengur með ríkisábyrgð eftir að félagið greiddi upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.
Skuldabréfið var að fjárhæð 150 milljónir evra sem er jafnvirði um 21 milljarðs íslenskra króna. Lánið var tekið til að fjármagna framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun. Skuldabréfið var gefið út árið 2006 og lánstími var 20 ár.
„Um er að ræða mikilvæg tímamót í fjármögnunarsögu orkufyrirtækis þjóðarinnar og lokaskref í þeirri vegferð að afnema ríkisábyrgð af öllum lánum fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni.
Skrefið endurspegli sterka fjárhagsstöðu fyrirtækisins sem hefur um árabil fjármagnað sig á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum án ríkisábyrgða.
Landsvirkjun hefur greitt ríkissjóði árlegt ríkisábyrgðargjald vegna ábyrgðarinnar.
Á undanförnum árum hefur hlutfall lána Landsvirkjunar með ríkisábyrgð lækkað ört að því er segir í tilkynningu. Þetta er í samræmi við markmið fyrirtækisins um að draga úr og að lokum afnema ríkisábyrgð.