Skjálftinn sem margir fundu fyrir um tvöleytið í dag mældist 4,5 stig og upptökin voru við Húsmúla á Hellisheiði. Skjálftarnir teljast nú á sjötta hundrað frá því í gær. Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofu Íslands, útskýrir í kvöldfréttum Sýnar að þetta sé losun á spennu sem safnast hafi saman síðustu áratugi og að það sé ekki útlit fyrir gos á næstunni.
Mynstrið sem hafi myndast frá því að hrinan hófst í gærmorgun bendi ekki á nokkurn hátt til þess að búast megi við gosi og að það séu engar vísbendingar um kvikusöfnun.
Þá segir hann fólk ekki hafa neitt að óttast en að það gætu orðið stærri skjálftar á svæðinu, byggingar á skjálftasvæðinu séu þó byggðar með það í huga að þola vel skjálfta. Skjálftarnir verði að öllum líkindum ekki mjög miklu stærri en sá sem reið yfir í dag eða að hámarki um 6 stig.