Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að ráðuneyti hans ætli að ráðast í endurskoðun á veru Bandaríkjahers í Evrópu. Hann sagði að sú endurskoðun myndi taka hálft ár að hámarki og yrði hugsanlega lokið fyrr.
Hegseth sagði að endurskoðunin hefði það að markmiði að Evrópuríki tækju sér forystuhlutverk í vörnum Evrópu. Hann sagði að einnig þyrfti að tryggja aðgang og afnot Bandaríkjahers af herstöðvum í Evrópu.
Hann gagnrýndi sum bandalagsríki fyrir að takmarka afnot af herstöðvum í stríði Bandaríkjanna við Íran. Hann sagði að of mörg aðildarríki hefðu fallið á því prófi.
Hegseth ræðir í dag við varnarmálaráðherra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í höfuðstöðvum þess í Brussel.
Hann hrósaði sumum aðildarríkjunum fyrir fundinn fyrir að hafa þegar aukið útgjöld sín til varnarmála en sagði að önnur þyrftu að gera meira.
Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði að aðildarríkin væru að stórauka útgjöld sín.
Bandaríkin hafa í forsetatíð Donalds Trumps þrýst mjög á Evrópuríki að auka varnarviðbúnað sinn og boðað tilfærslu bandarískra hersveita sem eru í Evrópu.
Fréttin hefur verið uppfærð.