Ellefu var sagt upp hjá Kviku banka í dag. Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar hefur bankinn ráðist í hagræðingaraðgerðir að undanförnu og hefur stöðugildum fækkað um 18 á árinu.
„Í dag áttu sér stað 11 sársaukafullar uppsagnir og jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að ráða ekki í stöður sem hafa losnað og munu losna á næstu mánuðum. Fækkun starfsfólks hefur náð til nánast allra eininga bankans,“ segir í tilkynningu frá Kviku.
Þar segir að þrátt fyrir vöxt á flestum sviðum bankans kalli breytt og krefjandi umhverfi á stöðugt aðhald í rekstri.
Kostnaður vegna uppsagnanna nemur rúmlega 100 milljónum króna, en gert er ráð fyrir að fækkun stöðugilda leiði til kostnaðarlækkunar upp á 400 milljónir króna á ári.