Elkem hefur tekið ákvörðun um að stilla af framleiðslu sína vegna tolla Evrópusambandsins. Slökkt var á einum ofni, þeim stærsta, af þremur ofnum í járnblendingsverksmiðju félagsins á Grundartanga þann fyrsta júní.
Þetta segir Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem, í samtali við fréttastofu.
Ráða ekki í sumastörf
Kveikt verður aftur á ofninum í lok sumars. Ákveðið var að draga úr framleiðslu yfir sumartímann svo að aðgerðin hefði sem minnst áhrif á starfsfólk Elkem, sem fer í sumarfrí og verður ekki sagt upp að sögn Álfheiðar. Á móti kemur að lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf hjá félaginu segir Álfheiður. Venjulega hefur Elkem á Íslandi ráðið 60 ungmenni í sumarvinnu en í sumar getur félagið einungis ráðið 20.
Ákvörðunin um að draga úr framleiðslu var tekin vegna erfiðra markaðsaðstæðna. Í nóvember í fyrra tilkynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins íslenskum og norskum stjórnvöldum að ríkin tvö fengju ekki undanþágu frá fyrirhuguðum tollum sambandsins á kísilmálm.
Í byrjun árs var einn ofn Elkem í viðhaldi og ákvörðun var tekin um að halda honum lengur úti til að draga úr framleiðslu, segir Álfheiður.
Tapa á sölu til Bandaríkjanna og Asíu
Elkem á Íslandi selur að jafnaði 75% af framleiðslu sinni til stáliðnaðar innan Evrópusambandsins og er eini framleiðandi járnblendis hér á landi svo tollarnir hafa mikil áhrif á starfsemi félagsins.
Álfheiður segir félagið hafa reynt að fara inn á bandarískan og asískan markað. „En við erum bara ekki samkeppnishæf,“ segir Álfheiður.
Elkem tapi á sölu í Bandaríkjunum og stórtapi á sölu til Asíu. Það sé einungis sérvaran þeirra, HP-málmur sem starfsemin byggir á, sem seljist um allan heim.