Eldur kviknaði í smáhýsi á vegum Reykjavíkurborgar við Fiskislóð á Granda í Reykjavík í kvöld.
Að sögn Stefáns Más Kristinssonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu, logaði talsvert í húsinu þegar slökkvilið bar að garði.
Tekist hefur að ráða niðurlögum eldsins. Slökkviliðsmenn eru enn á vettvangi þar sem þeir vinna að því að kæla húsið og ganga úr skugga um að eldur kvikni ekki á ný.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um eldsupptök eða hvort slys hafi orðið á fólki. Talið er að enginn hafi verið í húsinu þegar eldurinn kviknaði.
Fréttin hefur verið uppfærð með nýjustu upplýsingum um framvindu slökkvistarfsins.