Olíuverð lækkaði á heimsmörkuðum í dag. Ástæðan er aukin bjartsýni og vonir um frið við Persaflóa. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, boðaði í gær stórfelldar árásir á Íran en hætti síðan við. Trump sagði þá að sátt hefði náðst milli Bandaríkjanna og Írans en Íranir gengu heldur skemur í sínum yfirlýsingum.
Olíuverð lækkaði um fimm prósent á Brent-markaðnum fyrir Norðursjávarolíu og jafn mikið á West Texas Intermediate-markaðnum. Verðið er tæpir 86 dollarar fyrir fatið á Brent-markaðnum en rúmir 83 hjá West Texas.
Vonir hafa glæðst um að Hormússund verði opnað fyrir umferð flutningaskipa.