Þetta kemur fram í skriflegu svari Ásdísar Ýrar Pétursdóttur, forstöðumanns samskipta hjá Icelandair, við fyrirspurn fréttastofu.
„Við fylgjumst vel með þróun mála og erum í góðu sambandi við okkar birgja um stöðuna á hverjum tíma,“ segir hún.
Líkt og breska ríkisútvarpið fjallaði um í gær hefur sex vikna lokun Hormússunds haft mikil áhrif á birgðastöðu flugfélaga í Evrópu. Greint var frá því í dag að sundið hefði verið opnað í tilefni af tíu daga vopnahlés milli Líbanon og Ísrael.
Ríki við Persaflóa eru stærstu útflytjendur flugvélaeldsneytis í heiminum og því ekki að furða að lokun Hormússunds hafi áhrif á aðfangakeðjur flugfélaga. Þannig hefur verið haft eftir Fatih Birol, framkvæmdastjóra Alþjóðaorkumálastofnuninnar, að styttst gæti í aflýsingar flugferða í Evrópu vegna eldsneytisskorts.