Verð á bensíni og dísil hækkaði um allt að 31 krónu á miðnætti þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Skattprósentan hækkaði þá úr 11 prósentum í 24 prósent.
Lægsta verð á bensínlítra hækkaði um 23,60 krónur og dísillítrinn um 27,40 krónur, miðað við verð sem var skráð á vefnum GSM bensín í gærkvöldi og í morgun.
Hæsta verðið hækkaði öllu meira. Bensínlítrinn hækkaði um 27,50 krónur þar sem hann var dýrastur fyrir og dísillítrinn um 30,60 krónur.
Lægsta verð á bensíni fór úr 210,10 krónum í 224,70 krónur og hæsta verð úr 234,90 krónum í 262,40. Lægsta verðið á dísil fór úr 234,30 krónum í 261,70 og hæsta verðið úr 261,90 í 292,50.
Ríkisstjórnin ákvað að lækka skatta á eldsneyti tímabundið til að draga úr verðbólgu eftir að árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran hófust í vor. Lækkunin gilti fram yfir þau viðmið kjarasamninga sem réðu því hvort endurskoðunarákvæði virkjuðust eða ekki.