„Skilaboðin sem Ísland kemur með á fundinn í dag eru að Ísland er að standa undir öllum þeim væntingum sem eru gerðar til okkar,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra við fréttamann RÚV hér í Ankara í morgun, áður en leiðtogafundur NATO hófst.
„Við erum að virða okkar getumarkmið þegar kemur að varnarframlögum, þá sérstaklega varnartengdum framlögum. Við erum komin upp í hátt í eitt prósent af vergri landsframleiðslu þegar kemur að útgjöldum, og þarna sýnum við að við erum góður umboðsmaður öryggis á norðurslóðum og erum augu og eyru varnarbandalagsins.“
Ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær um Grænland og að það ætti að tilheyra Bandaríkjunum hafa vakið athygli hér í Ankara og víðar, enda var Trump með þessu að endurvekja umræðu sem farið hefur frekar hljótt undanfarna mánuði.
„Ég hef verið alveg skýr með að Grænland er auðvitað hluti af Danmörku og Grænland tilheyrir grænlenska fólkinu, og við verðum að virða það fullveldi sem þar er. Þetta er að sumu leyti kannski ekki óvænt útspil; þessi tónn hefur komið frá Bandaríkjaforseta áður. En línurnar eru alveg skýrar þegar kemur að bandamönnum, hann veit það vel, og ég bind miklar vonir við þá vinnu sem núna er í gangi milli Danmerkur og Bandaríkjanna,“ sagði Kristrún við RÚV áður en hún gekk inn á leiðtogafundinn.