Varaformaður AFLs stéttarfélags segir uppsagnir hjá Brim á Vopnafirði hafa verið þungt högg því fyrirtækið sé stærsti vinnuveitandinn í sveitarfélaginu. Brim segir að illa hafi gengið að finna verkefni fyrir starfsfólk milli vertíða og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækisins sé að tryggja að rekstur félagsins gangi vel.
Tuttugu starfsmönnum var sagt upp í dag, um 30% starfsmanna í uppsjávarvinnslu Brims á Vopnafirði. Breytingarnar fela í sér að auka hlut tímabundinna vertíðarstarfa í stað heilsársstarfa.
„Hljóðið er bara mjög þungt, ekki bara hjá starfsmönnum heldur bara á Vopnafirði öllum. Þetta er stærsti vinnuveitandinn á Vopnafirði þannig að þetta hittir það samfélag mjög illa,“ segir Birkir Snær Guðjónsson, varaformaður AFLs.
„Maður fékk svona pínulítið flashback bara í gamla tíma, þó að það sé ekki beint að gera að útgerðin sé að hverfa en við munum söguna. Mér finnst samfélagsleg ábyrgð Brims mikil hér á Vopnafirði. Þeir mættu taka það til sín þar.“
Fyrirtækið skýrir uppsagnirnar með því að eftir að bolfiskvinnslu var hætt árið 2018 sé vinnslan árstíðabundnari en áður var. Aflaheimildir í makríl hafi eins dregist töluvert saman og þar séu enn minni veiðar í sjónmáli á þessu ári en árið á undan.
„Við höfum skoðað það í nokkur skipti og síðast fyrir um ári síðan, að finna verkefni fyrir starfsfólkið okkar á milli vertíða, en það hefur ekki tekist,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs hjá Brim.
„Það er einfaldlega ekki hagkvæmt að taka fisk sem er á suðvesturhorninu og flytja hann á Vopnafjörð til að vinna hann þar. Við þurfum að huga að því að Brim gangi vel, að það sé hugsað til lengri tíma. Samfélagsleg ábyrgð okkar á Vopnafirði er fyrst og fremst að reksturinn sem við stöndum í á Vopnafirði gangi vel. Þannig er hugsað til lengri tíma.“