Orrustuþotur skutu niður dróna í Kaunas-sýslu í Litáen í nótt. Herinn gaf út gula hættuviðvörun vegna drónans og lofthelginni var lokað um tíma af öryggisástæðum.
Dróninn flaug inn í lofthelgi Litáens skömmu eftir miðnætti að staðartíma og var strax gefin út hættuviðvörun vegna hans. Um hálftíma síðar var dróninn skotinn niður í dreifbýli nærri Pratkūnai af orrustuþotum.
Forseti Litáen, Gitanas Nausėda, greindi frá því í færslu á X að dróni hefði verið skotinn niður af orrustuþotum Atlantshafsbandalagsins. Flugher Ítala sinnir um þessar mundir loftrýmisgæslu í Litáen á vegum Atlantshafsbandalagsins. Hættuviðvörun var aflétt og lofthelgin opnuð að nýju.
Lögreglan og herinn vinna að rannsókn málsins. Brak drónans fannst í nótt, en ekki er vitað hvort um árásardróna var að ræða.
Tegund, uppruni drónans og flugleið hans eru óþekkt en talið er hugsanlegt að dróninn hafi flogið til Litáen frá Belarús.
Orrustuþotur Atlantshafsbandalagsins sem sinna loftrýmisgæslu í Eystrasaltslöndunum skutu fyrst niður dróna í Eistlandi í maí. Þá skutu orrustuþotur einnig niður dróna í Lettlandi í júní og ágúst.