Stórt skemmtiferðaskip sem liggur við bryggju getur mengað á við fimm þúsund bíla. Fyrr í mánuðinum mældist hún fjörutíu sinnum meiri en alþjóðleg viðmið.
Vísindamenn á vegum Clean Arctic Alliance, sem eru regnhlífarsamtök náttúruverndarsamtaka, þeirra á meðal Náttúruverndarsamtaka Íslands, mældu fyrr í þessum mánuði sótagnamengun í andrúmslofti við Sundahöfn og á Miðbakkanum.
„Þessi stóru skip valda mikilli mengun,“ segir Kåre Press-Kristensen umhverfisverkfræðingur og aðalráðgjafi samtakanna Green Global Future sem gerði mælinguna fyrir Clean Arctic Alliance.
Allt að fjörutíu sinnum viðmið WHO
Viðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO fyrir sót í andrúmslofti er 1.000 míkrógrömm á rúmmetra.
Mælingar Kåre sýndu aftur á móti 35.000 til 40.000 míkrógrömm á rúmmetra, slíkt magn sótagna getur aukið hættuna á ýmsum sjúkdómum; m.a. hjarta- og æðasjúkdómum, blóðtappa og krabbameini.
Sé þetta sett í samhengi við umferðarmengun segir Kåre að mengun frá einu stóru skemmtiferðaskipi geti jafngilt mengun frá 5.000 bílum á hverri sekúndu.
Faxaflóahafnir mæla líka loftgæði
Allt að 5.000 eru um borð í stærstu skemmtiferðaskipunum sem hingað koma. Meðan þau liggja við bryggju þurfa þau gríðarlega orku – og hana fá þau með því að brenna jarðefnaeldsneyti.
Faxaflóahafnir eru með eigin loftgæðamæla í Laugarnesi sem er ætlað að mæla áhrif mengunar frá skipunum á borgarbúa, segir Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða- og umhverfisstjóri Faxaflóahafna.
„Þar hefur aldrei mælst yfir reglugerðarmörkum,“ segir hún.
Engin ástæða sé til að efast um mælingar Clean Arctic Alliance – þær séu einfaldlega gerðar nær skipunum.
Rafmagnið er lausnin
Erfitt er að draga úr menguninni fyrr en öll skip við bryggju geta tengst rafmagni úr landi - og það hillir undir það. Undirbúningur er í fullum gangi og Faxaflóahafnir hyggjast bjóða út kaup á búnaði í haust.
„Allt gengur samkvæmt áætlun og við stefnum ótrauð á að tengja fyrsta skemmtiferðaskipið 2028 í Sundahöfn,“ segir Gyða.
Síðan 2024 hafa smærri skip reyndar getað tengst rafmagni á Miðbakkanum. En þó að það sé í boði þurfa skipin líka að vera með búnað til að geta tengst. „Þetta er bara ákveðið verkefni sem við erum að vinna að. Það eru áskoranir í því.“