Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til - Vísir

Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til - Vísir

Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til - Vísir

Héraðsdómur skipaður tveimur dómurum og einum sérfræðingi komst að þeirri niðurstöðu á dögunum að íslenska ríkið væri bótaskylt vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns sem ekkja Andemariam Beyene og börn þeirra hefðu orðið fyrir vegna dauða Andemariam í kjölfar aðgerðar þar sem hann fékk ígræddan plastbarka.

Aðgerðin, sem var framkvæmd af skurðlækninum Paolo Macchiarini á Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Svíþjóð í júní árið 2011, komst í heimsfréttirnar á sínum tíma og aftur nokkrum árum síðar, þegar í ljós kom að Macchiarini hafði beitt sjúklinga, samstarfsmenn og fjölmiðla blekkingum og svikum. Hann var síðar dæmdur í fangelsi fyrir grófa líkamsárás gegn þremur sjúklingum, sem allir létust eftir plastbarkaaðgerð.

Tómas bað um eitt, Macchiarini hafði annað í hyggju

Til að skilja málið og dóminn gegn ríkinu, sem grundvallast á framgöngu Tómasar í málinu, er nauðsynlegt er rekja aðdraganda aðgerðarinnar.

Andemariam, sem er frá Erítreu en kom til Íslands árið 2007 til að stunda nám við Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna, greindist með krabbamein í berkju 27. október 2009. Tveimur dögum síðar gekkst hann undir aðgerð þar sem æxlið var fjarlægt að mestu. Tómas var fenginn til að aðstoða við þá aðgerð, þar sem mikil blæðing kom upp. Tók hann í framhaldinu við sem meðferðarlæknir Andemariam eftir að Hlynur Níels Grímsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum, fór erlendis og hætti síðar á Landspítalanum.

Macchiarini vakti athygli árið 2010, þegar hann og aðrir sérfræðingar græddu gjafabarka í ungan dreng í Lundúnum. Þegar Macchiarini var ráðinn til Karolinska var hins vegar varað við því að hann ætti á tíðum erfitt með að velja viðeigandi meðferðir fyrir sjúklinga sína.Getty/Katie Collins

Andemariam gekkst einnig undir geislameðferð en þegar það úrræði var að þrotum komið hafði Tómas samband við Massachusetts General Hospital í Boston, þar sem var að finna reynslumestu lækna heims á þessu sviði. Niðurstaðan var sú að best væri að framkvæmda laserskurð til að minnka æxlið og kaupa tíma. Tafir af hálfu Bandaríkjamanna og samningsleysi milli sjúkrahússins og Sjúkratrygginga urðu þó til þess að ákveðið var að leita til Karolinska, þar sem bent var á Paolo Macchiarini.

Tómas ritaði Macchiarini bréf vorið 2011 og óskaði mats hans á því hvort laseraðgerð til að minnka umfang æxlisins eða skurðaðgerð væru fýsilegir kostir fyrir Andemariam.

Ráðning Macchiarini til Karolinska var þáttur í áætlunum sjúkrahússins um að byggja upp miðstöð fyrir háþróaðar öndunarvegaskurðlækningar en skurðlæknirinn hafði verið að gera tilraunir með ígræðslu á sérstaklega meðhöndluðum börkum úr látnum manneskjum og þótti framarlega á sínu sviði. 

Á þeim tíma sem Tómas hafði samband höfðu hins vegar nokkrir mánuðir liðið frá ráðningu Macchiarini án þess að hann hefði gert eina einustu framsæknu aðgerð. Skýrslur sem unnar hafa verið um plastbarkamálið virðast þannig benda til þess að á meðan Tómas hafi verið að leita ráða varðandi laseraðgerð eða skurðaðgerð, hafi Macchiarini aðeins litið á Andemariam sem mögulegan kandídat fyrir plastbarkaígræðslu.

Hér verður ekki fjallað nánar um þátt Karolinska en málið þykir mikill áfellisdómur fyrir sjúkrahúsið, þar sem Macchiarini tókst að ganga fram með svikum og prettum og framkvæma fleiri aðgerðir án þess að gripið væri inn í.

Mátti vera ljóst í hvað stefndi

Aðkoma Tómasar að þeirri atburðarás sem endar með plastbarkaaðgerðinni á Andemariam skiptir höfuðmáli hvað varðar skaðabótaábyrgð ríkisins en fyrir liggur að Andemariam var ekki dauðvona þegar hann gekkst undir aðgerðina. Þá reyndist æxlið minna en ætlað hafði verið og var það niðurstaða sænskrar rannsóknar að viðeigandi meðferð hefði átt að vera laserskurður á meininu, staðbundin geislameðferð og/eða stentígræðsla.

Macchiarini hafði hins vegar aðrar fyrirætlanir.

Sérfræðinganefnd sem rektor Háskóla Íslands og forstjóri Landspítala skipuðu til að rannsaka plastbarkamálið komst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að hann hefði sýnt af sér aðgæsluleysi bæri Tómas ekki ábyrgð á plastbarkaaðgerðinni. Nefndin er raunar nokkuð miskunnsöm gagnvart Tómasi, sem hefur meðal annars haldið því fram að honum hafi ekki verið ljóst að Macchiarini hafi verið að íhuga gervibarkaaðgerð, þrátt fyrir að það hafi legið fyrir samkvæmt samskiptum á milli þeirra og annarra. 

Úr rannsóknarskýrslu HÍ og Landspítala:

„Ef ástand Andemariams var metið þannig á Karolinska háskólasjúkrahúsinu að mikið lægi á, þá stóðu að mati nefndarinnar veigamikil rök fyrir því að fara að ráðum bestu sérfræðinga í Boston í Bandaríkjunum og gera líknandi „laser debulking“ aðgerð og hafa þannig betri tíma til að meta ástand hans. „Laser debulking“ hefði mögulega dugað til að bæta öndun Andemariams í marga mánuði. Síðan hefði mögulega mátt endurtaka þá aðgerð oftar en einu sinni þar sem um mjög hægfara krabbameinsvöxt var að ræða. Í framhaldinu af „laser debulking“ aðgerð hefði hugsanlega einnig verið mögulegt að skoða aðra aðgerðarmöguleika þegar meira var vitað um umfang og vefjaskoðun á æxlinu.“

Fyrstu samskipti Tómasar og Macchiarini áttu sér stað 11. apríl 2011 þegar Tómas sendi Macchiarini bréf með upplýsingum um mál Andemariam en þremur dögum síðar sendir Tómas áðurnefndum Hlyni tölvupóst, þar sem hann segir Macchiarini hafa hringt í sig og talað um „transplant“. Daginn eftir fær Tómas síðan bréf frá Macchiarini þar sem síðarnefndi talar um skurðaðgerð til að fjarlægja sem mest af æxlinu sem fyrsta kost en ígræðslu með nýrri nálgun sem annan kost. 

Þarna, 15. apríl, er í fyrsta sinn talað um plastbarkaaðgerðina sem Andemariam gekkst undir. Í tölvupóstinum talar Macchiarini um „nanomedicine approach“ en Tómas bar því við í viðtali við rannsóknarnefnd HÍ og Landspítala að hann hefði ekki áttað sig á því um hvað væri verið að ræða. 

Samskipti læknanna héldu hins vegar áfram og í bréfi sem Macchiarini sendi Tómasi þann 20. apríl sagði fyrrnefndi meðal annars að það væri afar mikilvægt að fá reyndasta röntgenlækni Landspítalans til að yfirfara mælingar, í þeim tilgangi að búa til „tissue engineered graft“. Þannig væri hægt að búa til gervibarka til að hafa við hendina ef hefðbundin skurðaðgerð reyndist ekki fýsileg.

Áfram halda bréfaskriftir Macchiarini við Tómas og aðra íslenska sérfræðinga, þar sem hann leggur áherslu á bráðri nauðsyn nákvæmra mælinga til að byggja gervibarkann á.

Þann 8. maí biður Macchiarini Tómas svo um að senda sér aftur upphaflegu tilvísunina en bæta við möguleikanum á ígræðslu. Við þessu varð Tómas og sendi sömu upplýsingar til Sjúkratrygginga. Þá halda bréfaskiptin áfram og 12. maí biður Macchiarini Tómas um að setja fyrirspurn sína varðandi Andemariam á formlegt bréfsefni Landspítalans, þar sem hann sé að reyna að koma málinu í gegnum siðanefnd.

Tómas andmælti því við rannsóknarnefnd að honum hefði borið skylda til að ræða mál Andemariam við aðra lækna á Landspítalanum en leiða má líkur að því að mál hefðu þróast á annan veg ef hann hefði gert það.Vísir/Arnar

Enn biður Macchiarini Tómas um að gera breytingar á orðalagi og breyta setningunni „Is surgery a possible treatment modality for his patient?“ í „This patient has already exhausted every medical treatment and his only hope of survival and cure is, given that the tumor is only locally invasive and has no regional or systematic metastasis, the resection of the tumor with a safe reconstruction, either via standard airway surgery or using a transplant.“

Tómas svaraði samdægurs að hann myndi verða við óskum Macchiarini og seinna þann dag svarar Macchiarini að búið sé að ákveða að framkvæma ígræðsluna í Huddinge. Macchiarini talar ekki um aðgerð, heldur beint um „transplant“.

„Sérhvert nauðsynlegt skilyrði atburðar sé orsök hans“

Héraðsdómur Reykjavíkur kemst að annarri niðurstöðu en rannsóknarnefndin varðandi þessa atburðarás og samskipti Tómasar og Macchiarini.

„Mikilvægust og afdrifaríkust þeirra samskipta varða það er G breytti vísvitandi þann 12. maí 2011 tilvísun sjúklingsins til Svíþjóðar til þess að láta líta svo út sem „öll önnur læknismeðferð væri fullreynd“, að beiðni aðgerðarlæknisins F til þess að friða sænska siðanefnd. Svo sem leitt hefur verið í ljós, og getið er m.a. um í sænska refsidóminum og í rannsóknarskýrslunni um plastbarkamálið, var þessi fullyrðing röng og fullvíst þykir að meðferðarlæknirinn G hafi vel vitað það,“ segir í dómnum. 

„G“ er Tómas.

Dómurinn segir afar ósennilegt að Tómas hafi verið grandlaus og blekktur af Macchiarini varðandi það hvað til stóð, bæði í ljósi ofangreindra samskipta en einnig vegna þess að honum mátti vera ljóst að Macchiarini hefði ekki þurft að óska eftir leyfi siðanefndir fyrir aðgerðinni ef til stóð að láta Andemariam gangast undir gagnreynda meðferð.

Aðgerðin sem Andemariam gekkst undir var í reynd klínísk rannsókn.

Úr dómi héraðsdóms Reykjavíkur:

„Dómurinn, sem m.a. er skipaður sérfróðum meðdómanda, telur að það að senda sjúkling, sem ekki er í bráðri lífshættu, í tilraunaaðgerð sem aldrei hefur verið prófuð í manneskjum eða dýramódelum beri með sér gífurlega og fyrirsjáanlega áhættu á ban- vænum fylgikvillum og að þetta hafi lækninum G mátt vera ljóst. Þeir banvænu fylgikvillar sem aðgerðinni fylgdu og leiddu til andláts E voru því sennileg afleiðing af hinni saknæmu háttsemi læknisins.

Samkvæmt framangreindu sýndi G af sér stórfellt gáleysi í starfi, braut lög og reglur um sjúkraskrár og fór alvarlega gegn 11. gr. þágildandi læknalaga, sbr. nú 19. gr. laga nr. 34/2012, auk þess að fara vísvitandi fram hjá yfirmönnum sínum. Hann tók þátt í ferlinu af faglegum hvata og tók sjálfur þátt í tilraunaaðgerðinni. Þessi háttsemi setti af stað atburðarás sem leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til þess að sjúklingurinn lést. Skilyrði bótaskyldu um ólögmæti, saknæmi, orsakatengsl og sennilega afleiðingu eru því uppfyllt.“

Þá byggir dómurinn á því að í íslenskum rétti sé miðað við að „sérhvert nauðsynlegt skilyrði atburðar sé orsök hans“. 

Breytingar á tilvísun Tómasar hafi að öllum líkindum orðið til þess að læknateymið í Svíþjóð hafi talið sig hafa „viðeigandi tilvísun“ í höndunum til að verjandi væri að ráðast í tilraunaðgerðina. Þá sé ekki síður til þess að horfa að í stað þess að ráðfæra sig við samstarfsmenn sína á Landspítalanum hafi Tómas verið einn í allri ákvarðanatöku en fyrrum yfirlæknir á Landspítalanum sagði fyrir dómi að ef hann hefði vitað hvað til stóð hefði hann beitt valdi sínu til að koma í veg fyrir aðgerðina og hún þannig ekki verið framkvæmd.

Frægðarflan eða eðlilegur þáttur vísindastarfs?

Eftir að dómur féll hér heima hafa margir stigið fram og varið Tómas, meðal annars samstarfsmenn og skjólstæðingar. Staðreyndir málsins og sú atburðarás sem lýst er hér fyrir ofan verða varla hraktar, þar sem þær eru studdar fyrirliggjandi gögnum, en það sem er umdeildara eru niðurstöður héraðsdóms varðandi þankagang Tómasar.

Þannig segir meðal annars í dómnum:

„Svo sem að framan er lýst benda gögn málsins eindregið til þess að faglegur og akademískur metnaður G hafi ítrekað verið látinn ganga framar hagsmunum og velferð sjúklingsins. Auk þess sem sannleikanum var hagrætt, er við mat á saknæmisstigi læknisins jafnframt til þess mynsturs að líta, sem einkenndi háttsemi hans eftir aðgerðina.“

Þarna er meðal annars verið að vísa til þess að Tómas skuli hafa lagt nafn sitt við vísindagrein sem birt var um mál Andemariam, þar sem því var haldið fram að hann hefði verið einkennalaus og með nánast eðlilegan öndunarveg fimm mánuðum eftir aðgerð. Tómas hefði mátt vita að þetta væri rangt, þar sem þá lá ljóst fyrir að Andemariam glímdi við alvarlega og lífshættulega fylgikvilla.

Þá er það mat dómsins að Tómas hafi sýnt af sér ámælisverða háttsemi þegar hann beitti sér fyrir því að Andemariam kæmi fram á málþingi Háskóla Íslands árið 2012, þrátt fyrir að hann hefði verið mjög veikur skömmu áður og þurft bráðainngrip í Svíþjóð.

„G notaði þannig dauðvona sjúkling, sem var í viðkvæmri stöðu og algjörlega háður honum um eftirmeðferð, í auglýsingaskyni,“ segir í dómnum. „Þessi viðvarandi háttsemi G sýnir að mati dómsins svo ekki verður um villst að framganga hans var ekki afleiðing af afsakanlegum misskilningi, heldur kerfisbundið mynstur, þar sem sjúklingurinn og velferð hans voru nýtt sem tæki til að efla akademískan frama og eigin hagsmuni læknisins.“

Í rannsóknarskýrslunni er þessum atburðum lýst ítarlegar og þá var sérstaklega skoðað hvort sú vinátta sem myndaðist milli Tómasar og Andemariam hefði haft áhrif á meðferð síðarnefnda. Ljóst er samkvæmt nefndinni og þeim vitnum sem hún ræddi við að Tómas var Andemariam og fjölskyldu hans mikil stoð og stytta en auk þess að vera ávallt innan handar og eiga á tímabilum í nánast daglegum samskiptum við Andemariam, beitti Tómas sér meðal annars fyrir því að skjólstæðingur sinn gæti fengið fjölskyldu sína hingað til lands.

Sigurjón M. Egilsson fjölmiðlamaður er einn þeirra fjölmörgu sem hafa stigið fram til að verja Tómas.Miðjan.is

Þannig virðist við lestur skýrslunnar óumdeilt að Tómas bar hag Andemariam fyrir brjósti. Hins vegar eru nokkur atriði sem vikið er að í rannsóknarskýrslunni sem undirbyggja niðurstöðu héraðsdóms.

Eftir upphaflegu aðgerðina á Andemariam var ráðist í ritun vísindagreinar sem á endanum birtist í Lancet. Við samningu hennar var Andemariam beðinn um að gangast undir berkjuspeglanir, sem Tómas vissi að Andemariam var mjög illa við, og segir í rannsóknarskýrslunni að ekki sé hægt að útiloka að Andemariam hafi staðið höllum fæti og haft litla möguleika á að neita ósk Tómasar um að gangast undir rannsóknirnar sökum vináttu þeirra.

Þá liggur fyrir að Tómas átti þátt í því að fá Andemariam til að koma fram á málþingi 9. júní 2012, þrátt fyrir að hann hefði verið veikur með blóðhósta í maí og gengist undir skurðaðgerð í Svíþjóð undir lok mánaðarins. Í rannsóknarskýrslunni segir einnig að Tómas hafi sett ámælisverða pressu á Andemariam um að svara spurningum Harvard Bioscience Inc., framleiðanda plastbarkans, þar sem fyrirtækið hefði „gefið plastbarkann sem græddur var í hann“.

Þessu til viðbótar má nefna að Tómas hefur verið ávítaður fyrir að hafa gert meira úr aðkomu sinni að aðgerðinni á Andemariam en tilefni var til, þegar hann notaði orðið „við“ um þætti sem aðrir framkvæmdu í raun.

Varðandi meinta hvata Tómsar má, ef maður einfaldar málið, segja að rannsóknarskýrslan segi tvær sögur. 

Önnur segir frá lækni sem gerði allt sem hann gat fyrir sjúkling sinn auk þess að stunda hefðbundin vísindastörf; gefa út vísindagrein og greiða fyrir umfjöllun um nýjungar í læknavísindunum. Útgáfa og umfjöllun eru nauðsynlegur þáttur í vísindastarfi. Hin sagan segir frá lækni sem jú, sinnti sjúklingi sínum vel en lagði líka ýmislegt á hann í þágu eigin hagsmuna; til að svala þorsta sínum í frægð og frama.

Síðarnefnda er sagan sem héraðsdómur las. Við öðrum blasir málið öðruvísi við.

Úr rannsóknarskýrslu HÍ og Landspítala:

„Ef ástand Andemariams var metið þannig á Karolinska háskólasjúkrahúsinu að mikið lægi á, þá stóðu að mati nefndarinnar veigamikil rök fyrir því að fara að ráðum bestu sérfræðinga í Boston í Bandaríkjunum og gera líknandi „laser debulking“ aðgerð og hafa þannig betri tíma til að meta ástand hans. „Laser debulking“ hefði mögulega dugað til að bæta öndun Andemariams í marga mánuði. Síðan hefði mögulega mátt endurtaka þá aðgerð oftar en einu sinni þar sem um mjög hægfara krabbameinsvöxt var að ræða. Í framhaldinu af „laser debulking“ aðgerð hefði hugsanlega einnig verið mögulegt að skoða aðra aðgerðarmöguleika þegar meira var vitað um umfang og vefjaskoðun á æxlinu.“

Úr dómi héraðsdóms Reykjavíkur:

„Dómurinn, sem m.a. er skipaður sérfróðum meðdómanda, telur að það að senda sjúkling, sem ekki er í bráðri lífshættu, í tilraunaaðgerð sem aldrei hefur verið prófuð í manneskjum eða dýramódelum beri með sér gífurlega og fyrirsjáanlega áhættu á ban- vænum fylgikvillum og að þetta hafi lækninum G mátt vera ljóst. Þeir banvænu fylgikvillar sem aðgerðinni fylgdu og leiddu til andláts E voru því sennileg afleiðing af hinni saknæmu háttsemi læknisins.

Samkvæmt framangreindu sýndi G af sér stórfellt gáleysi í starfi, braut lög og reglur um sjúkraskrár og fór alvarlega gegn 11. gr. þágildandi læknalaga, sbr. nú 19. gr. laga nr. 34/2012, auk þess að fara vísvitandi fram hjá yfirmönnum sínum. Hann tók þátt í ferlinu af faglegum hvata og tók sjálfur þátt í tilraunaaðgerðinni. Þessi háttsemi setti af stað atburðarás sem leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til þess að sjúklingurinn lést. Skilyrði bótaskyldu um ólögmæti, saknæmi, orsakatengsl og sennilega afleiðingu eru því uppfyllt.“

#eitt #sem #tómas #vissi #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262891357d/eitt-er-thad-sem-tomas-vissi-og-gerdi-annad-hvad-honum-gekk-til

📰 Aðrar fréttir

Miklar truflanir vegna mót­mæla gegn inn­flytj­endum - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 0
Miklar truflanir vegna mót­mæla gegn inn­flytj­endum - Vísir
Ýmsir breskir miðlar greina frá en í umfjöllun BBC segir að öll umferð hafi verið stöðvuð til og frá höfninni. Lögreglan í Kent hafi ekki enn tjáð hve...
Vilhjálmur prins við jarðarför Haraldar konungs fyrir hönd föður síns
📅 05.09.2026 👁️ 0
Vilhjálmur prins við jarðarför Haraldar konungs fyrir hönd föður síns
Vilhjálmur Bretaprins mun verða viðstaddur jarðarför Haraldar Noregskonungs fyrir hönd Karls þriðja Bretakonungs. Jarðarförin verður níunda september....
Why more women carry the 'mental load' - and how couples can share it
📅 05.09.2026 👁️ 0
Why more women carry the 'mental load' - and how couples can share it
Planning, organising and remembering household tasks falls disproportionately to mothers - here are some tips to help.
Flyers might have to face more disruption with hotter skies
📅 05.09.2026 👁️ 0
Flyers might have to face more disruption with hotter skies
Are people going to have to increasingly accept more delays and diversions as the effects of climate change intensify?
Funduðu í Moskvu um enda­lok stríðsins - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 0
Funduðu í Moskvu um enda­lok stríðsins - Vísir
„Þeir munu mæta til þeirra með tillögu um að binda enda á stríðið,“ sagði Trump þegar hann var spurður út í heimsóknina. Hingað til hafa tilraunir Ban...
Átta ára stofnuðu eigið fótboltamót
📅 05.09.2026 👁️ 1
Átta ára stofnuðu eigið fótboltamót
Þrátt fyrir að heimsmeistaramótið í fótbolta sé nýafstaðið eru sumir sem ekki hafa fengið nóg af fótboltakeppnum. Vaskir strákar úr Garðabæ tóku málin...
Tveir slösuðust alvarlega í þriggja bíla árekstri – Beita þurfti klippum til að ná slasaðri stúlku úr bíl
📅 05.09.2026 👁️ 1
Tveir slösuðust alvarlega í þriggja bíla árekstri – Beita þurfti klippum til að ná slasaðri stúlku úr bíl
Sex slösuðust, þar af tvö alvarlega, í þriggja bíla árekstri á Suðurlandsvegi, austan Sólheimajökuls, á sjöunda tímanum í kvöld. RÚV greinir frá. Þyrl...
Sendimenn Bandaríkjanna báru fjölda leiða til að ljúka stríðinu undir Rússlandsforseta
📅 05.09.2026 👁️ 1
Sendimenn Bandaríkjanna báru fjölda leiða til að ljúka stríðinu undir Rússlandsforseta
Vladimír Pútín Rússlandsforseti átti „einstaklega opinskátt“ samtal við útsendara Bandaríkjastjórnar í nokkrar klukkustundir í dag um leiðir til að lj...
„Það þarf að setja það í al­gjöran for­gang að börn mæti í skólann“ - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
„Það þarf að setja það í al­gjöran for­gang að börn mæti í skólann“ - Vísir
Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var stofnað í nóvember síðastliðnum en í því ráði sitja fulltrúar frá öllum sveitarfélögum á svæðinu. Verkefni þess ...
Katie Taylor vs Flora Pili: Ireland's boxing great crowns career in stylish Croke Park triumph
📅 05.09.2026 👁️ 1
Katie Taylor vs Flora Pili: Ireland's boxing great crowns career in stylish Croke Park triumph
Katie Taylor ends illustrious career as a three-time undisputed world champion as Croke Park gave one of Ireland's greatest sporting figures the grand...
Nær dauða en lífi eftir að hafa innbyrt nikótínpúða
📅 05.09.2026 👁️ 1
Nær dauða en lífi eftir að hafa innbyrt nikótínpúða
Kátur er íslenskur fjárhundur á besta aldri, elskaður og dáður af fjölskyldu sinni. Fyrir nokkru komst Kátur í hann krappann og var vart hugað líf.„Vi...
Pútín fundar um endalok Úkraínustríðsins
📅 05.09.2026 👁️ 1
Pútín fundar um endalok Úkraínustríðsins
Pútín fundar um endalok Úkraínustríðsins Banda­rísk­ir er­ind­rek­ar, tengda­son­ur Trumps og við­skipta­fé­lagi, sátu í þrjá tíma með Vla­dimír Pútín...
Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast fram­halds­líf - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast fram­halds­líf - Vísir
Flugbrautinni í Narsarsuaq var lokað um miðjan apríl og vellinum breytt í þyrlulendingarstað sama dag og nýr alþjóðaflugvöllur var opnaður við bæinn Q...
Kerfi Teya komið í lag og greiðsluposar virka sem skyldi
📅 05.09.2026 👁️ 1
Kerfi Teya komið í lag og greiðsluposar virka sem skyldi
Truflun á kerfum fjártæknifyrirtækisins Teya varð í dag sem olli því að posar sem tengdir eru kassakerfum tóku ekki við færslum. Í fréttatilkynningu f...
Prince William to attend King Harald's funeral in Norway
📅 05.09.2026 👁️ 1
Prince William to attend King Harald's funeral in Norway
The Prince of Wales will represent the King at the funeral of Harald V in Oslo next week.
Posarnir komnir í lag á ný - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Posarnir komnir í lag á ný - Vísir
Þetta segir í tilkynningu frá forstöðumanni viðskiptaupplifunar hjá Teya. Bilanirnar í dag hafi orðið vegna truflunar á kerfum sem sér um tengingar po...
Kleinuhringjakeppni og dúkakippingar á 30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans
📅 05.09.2026 👁️ 1
Kleinuhringjakeppni og dúkakippingar á 30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans
Hótel- og matvælaskólinn fagnaði í dag 30 ára afmæli. Framkvæmdastjóri skólans segir námið mikilvægara en oft áður í ljósi vaxandi ferðaþjónustu. Fjöl...
Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandi
📅 05.09.2026 👁️ 1
Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandi
Sex eru slasaðir, þar af tveir alvarlega, eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Lan...
Krefjumst þingrofs og nýrra kosninga!
📅 05.09.2026 👁️ 1
Krefjumst þingrofs og nýrra kosninga!
Krefjumst þingrofs og nýrra kosninga! Fréttin5. september 2026Aðsend grein, Innlent, Kristín Inga Þormar, StjórnmálLeave a Comment Kristín Þormar skri...
Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul - Vísir
Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa verið kallaða út að beiðni lögreglu og sé rétt ókomin á staðinn.  Að sögn ...
Umferðarslys austan við Sólheimajökulsveg
📅 05.09.2026 👁️ 1
Umferðarslys austan við Sólheimajökulsveg
Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls ...
Umferðarslys austan Sólheimajökulsvegar
📅 05.09.2026 👁️ 1
Umferðarslys austan Sólheimajökulsvegar
Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls ...
Á­fall og tjón að missa skyndi­lega teljarann - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Á­fall og tjón að missa skyndi­lega teljarann - Vísir
Það var sunnudaginn 19. ágúst 2001 sem Ragnar Freyr Vestfjörð lést í bílslysi. Hann hafði verið á rúntinum með félögum kvöldið áður og losað beltið á ...
Major disruption as grass fire hits Heathrow train links
📅 05.09.2026 👁️ 1
Major disruption as grass fire hits Heathrow train links
Severe delays and cancellations are set to continue, with no trains between central London and the airport.
Vara við manni sem hafi óskað eftir per­sónu­upp­lýsingum nem­enda - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Vara við manni sem hafi óskað eftir per­sónu­upp­lýsingum nem­enda - Vísir
SHA vakti athygli á málinu í tölvupósti til systurfélaga sinna sem fréttastofa hefur fengið afrit af. Þar segist stúdentaráð vilja vara við háttsemi m...
Hefði rétt eins getað gerst hér
📅 05.09.2026 👁️ 1
Hefði rétt eins getað gerst hér
Hafréttarsérfræðingur segir að kyrrsetning rússnesks rannsóknarskips á Svalbarða hefði rétt eins getað gerst hér. Skipið liggur enn þar við bryggju og...
Björguðu tveimur til viðbótar í Nepal
📅 05.09.2026 👁️ 1
Björguðu tveimur til viðbótar í Nepal
Björgunarsveitir í Nepal náðu í dag að bjarga tveimur sem hefur verið saknað frá því meiri háttar aurskriða féll fyrir tíu dögum til viðbótar. Annar m...
Dóttur nasista gert að skila portrett af hefðarfrú
📅 05.09.2026 👁️ 1
Dóttur nasista gert að skila portrett af hefðarfrú
Argentínskur dómari hefur úrskurðað að málverki hollensks listaverkasafnara skuli skilað til erfingja hans, áratugum eftir að nasistar stálu því.Málve...
Bandaríkjaher svarar Írönum – Hæfðu þrjú olíuflutningaskip
📅 05.09.2026 👁️ 1
Bandaríkjaher svarar Írönum – Hæfðu þrjú olíuflutningaskip
Bandaríkjaher hæfði þrjú írönsk olíuflutningaskip í loftárásum í hefndarskyni eftir að Íranir skutu á bandarísk herskip.Árásirnar voru í Ómanflóa og P...
Banda­ríkjaher gerði á­rásir á þrjú írönsk skip - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Banda­ríkjaher gerði á­rásir á þrjú írönsk skip - Vísir
Bandaríkjaher segist hafa gert olíuskip nærri Kharg-eyju og annað nálægt Jask í Ómanflóa „varanlega óvirk“ og „gjöreyðilagt“ það þriðja eftir að áhöfn...
Hvaðan koma þessi skip?!
📅 05.09.2026 👁️ 2
Hvaðan koma þessi skip?!
Hvaðan koma þessi skip?! Sjóorr­ust­an við Ega­díu­eyj­ar er ekki með­al hinna þekkt­ari í sög­unni. En ef úr­slit hefðu ráð­ist öðru­vísi er hætt við...
Ó­þarft að fara til Reykja­víkur til að hlaupa - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Ó­þarft að fara til Reykja­víkur til að hlaupa - Vísir
Fyrirmyndin er hið landsþekkta bakgarðshlaup sem fer fram ár hvert á höfuðborgarsvæðinu þegar fólk hleypur sama hringinn aftur og aftur, í sumum tilfe...
Þrjár vinkonur eru ótrúlega samrýmdar í barneignum sínum
📅 05.09.2026 👁️ 2
Þrjár vinkonur eru ótrúlega samrýmdar í barneignum sínum
Þrjár vinkonur á höfuðborgarsvæðinu eru ótrúlega samrýmdar þegar kemur að barneignum án þess að vita af því fyrir fram. Vinkonurnar eignuðust allar bö...
Skólastjóri Rimaskóla geldur varhug við lengdum útivistartíma barna
📅 05.09.2026 👁️ 2
Skólastjóri Rimaskóla geldur varhug við lengdum útivistartíma barna
Þórönnu Rósu Ólafsdóttur, skólastjóra Rimaskóla, þykir ekki rétt skref að lengja útivistartíma barna. „Mér finnst þetta ekki vera rétt skref miðað við...
Við höfum stjórn á sumu en öðru ekki
📅 05.09.2026 👁️ 2
Við höfum stjórn á sumu en öðru ekki
Við höfum stjórn á sumu en öðru ekki Líf­ið er rúss­íbanareið. Það hend­ir í okk­ur alls kon­ar verk­efn­um. En jafn­vel verk­efni eins og veik­indi, ...
Lög­reglan í Kaup­manna­höfn stendur í ströngu - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 3
Lög­reglan í Kaup­manna­höfn stendur í ströngu - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins Dr.dk en þar segir einnig að lögreglan hafi haft í nógu að snúast vegna mótmælan...
Bilun hjá Teya: „Þetta er náttúrlega agalegt“
📅 05.09.2026 👁️ 3
Bilun hjá Teya: „Þetta er náttúrlega agalegt“
Bilun kom upp hjá fjártæknifyrirtækinu Teya í dag, sem hefur haft áhrif á kortagreiðslur. Langar biðraðir eru til að mynda í verslun IKEA í Kauptúni.„...
Bilun hjá Teya veldur löngum röðum - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Bilun hjá Teya veldur löngum röðum - Vísir
Eins og stendur er unnið að því að leysa úr kerfisbilun hjá Teya sem veldur þjónustuörðugleikum í posum og greiðslumiðlun víða. Allt tiltækt lið Teya ...
Bilun hjá Teya olli löngum röðum - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Bilun hjá Teya olli löngum röðum - Vísir
Eins og stendur er unnið að því að leysa úr kerfisbilun hjá Teya sem veldur þjónustuörðugleikum í posum og greiðslumiðlun víða. Allt tiltækt lið Teya ...
Sendimenn Trumps, Witkoff og Kushner, lenda í Moskvu
📅 05.09.2026 👁️ 3
Sendimenn Trumps, Witkoff og Kushner, lenda í Moskvu
Sendimenn Trumps, Witkoff og Kushner, lenda í Moskvu Fréttin5. september 2026InnlendarLeave a Comment Sendimenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, Stev...
King and Queen join Highland games fans at Braemar Gathering
📅 05.09.2026 👁️ 2
King and Queen join Highland games fans at Braemar Gathering
The King and Queen watched events including Highland dancing, caber tossing and pipe bands performing at the annual event in Royal Deeside.
Alþingi rannsaki RÚV vegna hlutdrægni og rangfrétta
📅 05.09.2026 👁️ 2
Alþingi rannsaki RÚV vegna hlutdrægni og rangfrétta
Alþingi rannsaki RÚV vegna hlutdrægni og rangfrétta Fréttin5. september 2026InnlendarLeave a Comment Stefán Eiríksson útvarpsstjóri RÚV. Páll Vilhjálm...
US hits three Iranian oil tankers after saying its warships were targeted
📅 05.09.2026 👁️ 2
US hits three Iranian oil tankers after saying its warships were targeted
US Central Command says the attacks came after Iran launched ballistic missiles at two of its Navy warships.
US and Iran trade retaliatory attacks on ships as conflict flares
📅 05.09.2026 👁️ 1
US and Iran trade retaliatory attacks on ships as conflict flares
The US says it hit three Iranian oil tankers, while Iran says it targeted three US-linked ships.
Höfðuklútafjandinn
📅 05.09.2026 👁️ 3
Höfðuklútafjandinn
Höfðuklútafjandinn Fréttin5. september 2026Aðsend grein, Erlent, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar: Síðustu vik...
Upphlaup vegna mótmæla í Kaupmannahöfn
📅 05.09.2026 👁️ 2
Upphlaup vegna mótmæla í Kaupmannahöfn
Samtök gegn kynþáttafordómum og mismunun (SgKM) boðuðu til sinna mótmæla við Dag Hammerskjolds Allé, í um 750 metra fjarlægð frá upphafspunkti mótmæla...
Upphlaup vegna mótmæla í Kaupmannahöfn – Þrír handteknir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Upphlaup vegna mótmæla í Kaupmannahöfn – Þrír handteknir
Hér koma nokkrar ljósmyndir frá mótmælunum á Østerbro og aðgerðum lögreglu.Hér má sjá myndskeið af lögreglu reka mótmælendur til baka. Mótmælendurnir ...
Deilur innan hinsegin samfélagsins
📅 05.09.2026 👁️ 2
Deilur innan hinsegin samfélagsins
Deilur innan hinsegin samfélagsins Fréttin5. september 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, Hinsegin málefni, InnlentLeave a Comment Mynd úr safni. H...
Nigel Farage tells BBC he 'wasn't listening' in foreign donor talks
📅 05.09.2026 👁️ 1
Nigel Farage tells BBC he 'wasn't listening' in foreign donor talks
The Reform leader also told the BBC's Laura Kuenssberg that his family are "begging" him to leave his job.
Missti besta vin sinn á Krýsu­víkur­vegi og son í um­ferðar­slysi - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Missti besta vin sinn á Krýsu­víkur­vegi og son í um­ferðar­slysi - Vísir
Þetta segir Jóhann Helgi Hlöðversson í samtali við fréttastofu en hann missti einn sinn besta vin í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi árið 1981 þegar han...