Argentínskur dómari hefur úrskurðað að málverki hollensks listaverkasafnara skuli skilað til erfingja hans, áratugum eftir að nasistar stálu því.
Málverkið Portrett af hefðarfrú eftir ítalska listmálarann Giuseppe Ghislandi var í eigu Hollendingsins Jacques Goudstikker sem var gyðingtrúar. Goudstikker átti viðamikið safn listaverka, yfir þúsund verk, og skildi stærstan hluta þeirra eftir er hann flúði land örfáum dögum eftir innrás þýska hersins í Holland 1940. Verkunum skiptu háttsettir þýskir embættismenn sín á milli.
Portrett af hefðarfrú uppgötvaðist á heimili í argentínska strandbænum Mar de Plata fyrir tilstilli fasteignaauglýsingar í fyrra. Verkið reyndist vera í eigu Patriciu Kadgien, dóttur Friedrich Kadgien, fjármálaráðgjafa Nasistaflokksins. Hann var einn fjölmargra nasista sem flúðu til Argentínu eftir seinna stríð.
Þegar lögregla mætti á staðinn eftir að málverkið uppgötvaðist á fasteignavef var það horfið af veggnum. Patricia og eiginmaður hennar voru sett í stofufangelsi og ákærð fyrir að fela verkið. Hún hefur samþykkt að skila verkinu til Hollands og gefa rúma 3 þúsund dollara til sjúkrahúsa í nágrenninu.
Hollenska ríkið hefur endurheimt um 300 verk úr safni Goudstikkers og skilað flestum til erfingja hans, en hundruð verka eru enn ófundin.