Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þetta staðfestir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi. Upplýsingar um slys á fólki liggja ekki fyrir.
Fréttastofu hafa borist ábendingar um miklar umferðartafir vegna slyssins.
Fréttin verður uppfærð.