Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins Dr.dk en þar segir einnig að lögreglan hafi haft í nógu að snúast vegna mótmælanna. Þá hafi lögreglu ekki verið gert viðvart um skipulögðu mótmælin en í dag er fánadegi til heiðurs dönskum hermönnum fagnað þar í landi einnig.
Þá segir einnig í umfjölluninni að fólk hafi gert tilraun til þess að loka fyrir alla umferð í götum í miðborg Kaupmannahafnar og lögreglan hafi þurft að fjarlæga það með valdi, er fram komi í tilkynningu frá lögreglunni í Kaupmannahöfn á Police Update.
Myndir af vettvangi sýna lögreglu beita kylfum í átökum við mótmælendur en líkt og fyrr segir voru í það minnsta tvenn skipulögð mótmæli sem hófust klukkan 12:00 á staðartíma. Það voru „ganga fyrir Danmörku“ við Trianglen í Østerbro og gagnmótmælin við Dag Hammarskjölds Allé, sem er í nokkur hundruð metra fjarlægð frá Trianglen.
Í færslu sem birt var á Facebook-reikningi „Danska fólksins“ sagði meðal annars að „það verður gríðarleg fjölmiðlaumfjöllun. DR, TV 2, Radio4, Berlingske, B.T. og aðrir miðlar verða á staðnum“ og voru allir þátttakendur hvattir til þess að skarta dönsku fánalitunum og taka nóg af myndböndum frá mótmælunum til þess að deila áfram.
Fréttin er í vinnslu.