Við höfum stjórn á sumu en öðru ekki

Við höfum stjórn á sumu en öðru ekki

Við höfum stjórn á sumu en öðru ekki

Við höfum stjórn á sumu en öðru ekki

Líf­ið er rúss­íbanareið. Það hend­ir í okk­ur alls kon­ar verk­efn­um. En jafn­vel verk­efni eins og veik­indi, áföll eða áskor­an­ir hafa á end­an­um gert mér gott.

Lífið er yndisleg rússíbanareið. Það hendir alls konar verkefnum að okkur sem við höfum enga stjórn á en um leið eru mörg verkefni sem við getum valið að fara í. Við höfum nefnilega stjórn á sumu en öðru ekki.

Lífið hefur kennt mér þetta. Oft hef ég ætlað mér að gera eitthvað eða láta verða að einhverju en svo gerist lífið og ég verð að finna aðrar leiðir.

Sem dæmi þá ætlaði ég að klára verkfræði. Ég hóf nám og allt gekk ágætlega þar til lífið ákvað að mér forspurðri að ég skyldi hætta náminu, allavega um stundarsakir, til þess að takast á við það verkefni að eignast og sinna fyrirbura. Fyrirburinn minn breytti þeirri leið sem ég var á og í stað þess að klára verkfræði fór ég allt aðra leið.

Það hefur reynst mér mikil gæfa. Það sá ég ekki strax, að sjálfsögðu ekki, en í stað þess að gráta Björn bónda fór ég í allt aðra átt, valdi annað nám og útskrifaðist úr því.

Þetta er alls ekki í eina skiptið sem lífið hefur ákveðið fyrir mig í hvaða átt ég fer. Sem dæmi vann ég í verslunargeiranum í mörg ár. Einn daginn var ég svo rekin úr vinnunni sem var mikið áfall, enda ég með stóra fjölskyldu.

Það var þá sem mér bauðst að vinna í fjölmiðlum, sem var líka mikil gæfa. Mig hafði svo sem alltaf dreymt um það að vinna í fjölmiðlum en tækifærið gafst hreinlega ekki fyrr en þarna. Það er þetta með dyrnar sem lokast og aðrar sem opnast.

Þau eru fleiri svona dæmin í mínu lífi. Lífið hendir einhverju í mig og ég verð að skoða aðrar leiðir og lausnir. Það sem lífið hefur síðan hent að mér hefur á endanum breytt lífi mínu til batnaðar. Hvort sem það eru verkefni eins og veikindi, áföll eða áskoranir, þá hefur þetta gert mér gott.

„Auðvitað gæti ég kvartað og kveinað og mér gæti fundist lífið ósanngjarnt, en ég hef lært það að það er ekki til neins

Auðvitað gæti ég kvartað og kveinað og mér gæti fundist lífið ósanngjarnt, en ég hef lært það að það er ekki til neins. Það þýðir ekkert að sitja og velta sér upp úr því sem ég hef ekki stjórn á. Ég hef enda enga stjórn á sumu. Það eina sem ég get stjórnað er hvernig ég bregst við og hvaða skref ég get tekið í gegnum veikindi, streð, áföll eða hvaðeina sem er.

Það sem hefur hjálpað mér mest er að muna að það er svo óendanlega margt sem ég get verið þakklát fyrir og ég geri mitt allra besta til að minna mig á það daglega. Ég þakka fyrir fjölskylduna mína, að ég eigi samastað, að ég eigi vini og áhugamál, að ég eigi föt og skó og langoftast hef ég átt fyrir mat og nauðsynjum.

Allt strögl og allar áskoranir hafa á endanum leyst og jú, auðvitað koma erfiðir tímar og tímabil en þá þykir mér gott að muna eftir því sem ég þó á og get verið þakklát fyrir.

Ég minni mig líka stöðugt á að ég hef ekki stjórn á öllu sem gerist í lífinu. Ég get til dæmis ekki breytt öðru fólki eða ákveðið veðrið. Ég get hins vegar ákveðið hvernig ég bregst við. Ég get ákveðið að taka fólki eins og það er, nú eða sleppt því að fara í útilegu ef það er hellidemba. Ég get líka ákveðið hvort ég reiðist eða gleðst, öskra eða hvísla, tala hreint út eða undir rós. Það að ákveða viðbrögð sín er áskorun í sjálfu sér, það getur verið afar erfitt en þá hefur reynst mér vel að reyna að muna að ég hef ekki stjórn á öðrum, bara mér.

Erfiðast hefur reynst að takast á við áfallastreitu. Það var það andlega verkefni sem tók mig lengstan tíma. En það er hægt. Það er hægt með þrotlausri vinnu og með því að muna að ég ber ekki ábyrgð á öðrum eða verkum annarra. Skila skömminni eins og það er kallað.

Ég hef líka lært að við gerum öll mistök. Enginn kemst í gegnum lífið án þess að gera mistök. Ég hef lært að það hvernig ég bregst við eigin mistökum skiptir mestu, meiru en mistökin sjálf. Að biðjast afsökunar, fyrirgefa sjálfum sér og læra af mistökunum er það sem skiptir máli.

Ég hef líka lært að ástin, kærleikurinn og þakklætið skipta sköpum fyrir sálarheill mína. Að við erum öll einhvern veginn og fyrir mig er betra að sýna öllu fólki kærleika og umhyggju, reyna að setja sig í spor þeirra og skilja, að hlusta skiptir mig máli.

Ég hef reynt að hlusta og læra af öðrum. Ég hef reynt að tileinka mér kærleika gagnvart fólki og hata engan. Hatrið er nefnilega það versta sem ég hef upplifað. Ég hataði lengi framan af, þegar ég var ung. Það eina sem hatrið gerði mér var að meiða mig og skaða. Að losna undan hatrinu var risaskref og gott og þangað vil ég aldrei aftur fara.

Kærleikur er sterkari en hatrið og ég hef lært að það er betra að lifa í kærleika.

Landið mitt, náttúran mín, heimilið mitt og fólkið mitt er það dýrmætasta sem ég á. Það er hvergi betra að vera en umvafin því. Ég er svo lánsöm að eiga stóra fjölskyldu og yndislega. Ég er svo lánsöm að nú á ég fasteign, eitthvað sem mig dreymdi um í næstum 20 ár. Ég er svo lánsöm að hafa mér við hlið einstakling sem hefur gengið með mér í bráðum 40 ár. Ég er svo lánsöm að geta gert alls konar sem var óhugsandi áður.

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég nýt mikilla forréttinda. Mér þykir mikilvægt að muna það. Mér þykir mikilvægt að muna að lífið getur alltaf hent einhverjum verkefnum að mér og þá skiptir máli hvernig ég bregst við. Mér þykir líka mikilvægt að muna að lífið hendir verkefnum að öllu fólki og stundum eru verkefnin svo erfið að fólk getur ekki brugðist við eða breytt um leið.

Ég hef lært að lífið er alls konar og það sendir fólki mismunandi verkefni að glíma við. Verkefni sem sum hver eru ósanngjörn og ill. Ég hef lært að fyrir mig þá skiptir það máli að ég taki tillit til þess og reyni að skilja að sum fá erfiðari verkefni en önnur. Og því reyni ég eftir fremsta megni að dæma fólk ekki. Það er enda ekki mitt að dæma.

Ég hef lifað áföll, veikindi, veikindi barna, fátækt, atvinnumissi og sorg. Ég hef gert alls konar mistök. Við höfum öll lifað alls konar. Mitt líf er ekkert merkilegra en þitt. Mín áföll, veikindi, veikindi barna, fátækt, atvinnumissir og sorg, eru ekkert merkilegri en þín. Við erum öll alls konar og þótt ég hafi dregið ákveðinn lærdóm af mínu lífi er ekki þar með sagt að það sé rétti lærdómurinn eða sá besti.

En lærdómur minn getur kannski verið þinn að einhverju leyti. Því lífið er rússíbanareið. Það hendir alls konar verkefnum að okkur sem við höfum enga stjórn á. Og fyrir mig er gott að muna það. Fyrir mig er gott að muna að ég get stjórnað sumu en öðru ekki og að ég get valið líf í kærleika.

#höfum #stjórn #sumu #við #öðru


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27088/vid-hofum-stjorn-a-sumu-en-odru-ekki/

📰 Aðrar fréttir

Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 2
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 2
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 2
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 2
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 3
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
📅 22.10.2026 👁️ 2
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
Drenglyndi hópur foreldra og kennara hefur vakið athygli á upplýsingaóreiðunni sem fylgir því þegar fjölmiðlar segja frá ,,óléttum karlmanni.“ Dv Kvör...
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
📅 22.10.2026 👁️ 2
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu...
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavé...
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær að efsta hæð bílahússins við Bergstaðastræti verði opnuð sem P1-gjaldsvæði. Miðhæð hússins er þegar rekin m...
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
📅 22.10.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu á...
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
📅 22.10.2026 👁️ 2
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
Journalist Will Murray describes how he and a bystander saved an SUV driver from his vehicle.
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugarnar hafi lent í nokkrum hverfum Kænugarðs og valdið þar skaða á íbúðarhúsnæði, orkuinnviðum og...
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
📅 22.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
The friend of a woman claiming to have been raped by Russell Brand says she said he was "quite aggressive".
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 3
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
📅 22.10.2026 👁️ 2
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
He says he found treasure in his attic where the collection had been stored for 15 years.
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 3
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 3
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 4
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 4
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 4
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 4
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 4
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...