Truflun á kerfum fjártæknifyrirtækisins Teya varð í dag sem olli því að posar sem tengdir eru kassakerfum tóku ekki við færslum. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að kerfið sé komið í lag og sé stöðugt.
Truflunin náði ekki til annarra þjónusta Teya, svo sem handfrjálsra posa og annarra greiðslulausna. Orsök truflunarinnar liggur ekki fyrir og málið er í skoðun. Í tilkynningu Teya segir enn fremur að öryggi greiðslna og gagna viðskiptavina hafi ekki verið ógnað.
„Við biðjum þá viðskiptavini okkar sem urðu fyrir þessar truflun og þeirra viðskiptavini sömuleiðis innilegrar afsökunar á óþægindunum. Við gerum okkur fulla grein fyrir því hversu mikilvægt er að greiðslumiðlun sé áreiðanleg og lítum því málið alvarlegum augum,“ segir í tilkynningunni.