Sex eru slasaðir, þar af tveir alvarlega, eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þetta staðfestir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti fjóra til aðhlynningar í Reykjavík, þar af tvo alvarlega slasaða. Þar að auki voru tveir fluttir með sjúkrabíl á Selfoss. Sjónarvottur segir að beita hafi þurft klippum til að ná einum þeirra slösuðu úr bíl.
Íris segir rannsóknardeild lögreglunnar á leið á vettvang. Hringvegurinn verður lokaður í báðar áttir þar til rannsókn lýkur.
Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við umferðartöfum eða lokunum á Hringvegi undir Sólheimajökli vegna umferðaróhappsins. Búist er við að geta opnað veginn kl. 21:30.