Eins og stendur er unnið að því að leysa úr kerfisbilun hjá Teya sem veldur þjónustuörðugleikum í posum og greiðslumiðlun víða. Allt tiltækt lið Teya hefur verið kallað út til að vinna að vandamálinu.
Þetta kemur fram í upplýsingum frá fyrirtækinu en þar er beðist innilegrar velvirðingar á vandamálum sem bilunin kann að valda. Kristófer Daði Garðarson, yfirmaður hjá þjónustuveri Teya segir í samtali við fréttastofu að lausn sé í sjónmáli. Vonir voru bundnar við að kerfið yrði aftur komið í gang upp úr klukkan 16.00 en það tókst ekki.
„Það voru vendingar í gangi og tilraunir sem virtust líta vel út en það virðist síðan ekki hafa gengið eins og við vildum. Auðvitað segir maður alltaf bara að þetta komist í lag sem fyrst. Allir eru að gera sitt besta í að reyna að laga þetta,“ segir Kristófer Daði.
Hann tekur fram að fjöldi verslana og annarra fyrirtækja sem bilunin hefur áhrif á hlaupi á hundruðum.
Búið sé að greina vandamálið sem snúi að tengingu milli kassakerfis og posa. Teya hafi ráðlagt þeim verslunum og fyrirtækjum sem hafi lent í vandræðum að taka posana af kassakerfistengingunni.
Veistu meira um málið? Áttu myndir af röðum? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur hálfgerð örtröð myndast í verslun Ikea í Kauptúni.
Stefán Rúnar Dagsson, framkvæmdastjóri Ikea, segir í samtali við fréttastofu að bilunin hafi staðið yfir í um klukkutíma. Hann tekur fram að GSM-posar hafi verið teknir í gagnið og því gangi afgreiðslan áfram þó hún gangi hægar fyrir sig.
„Þetta eru mjög langar raðir hjá okkur en við erum GSM-posa sem við getum gripið til. Þetta er á versta tíma og er bara alltaf á versta tíma. Alveg sama hvenær það gerist, þetta er alveg ömurlegt. Ömurlegt að geta ekki treyst kerfinu.“
Uppfært kl 20:39: Posar tengdir kassakerfum virka nú á ný hjá Teya.
Fréttin hefur verið uppfærð
Veistu meira um málið? Áttu myndir af röðum? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is