Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa verið kallaða út að beiðni lögreglu og sé rétt ókomin á staðinn.
Að sögn Írisar Eddu Heimisdóttur, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi, voru samtals átta farþegar í bílunum þremur sem lentu í slysinu. Fjórir þeirra verði fluttir til aðhlynningar með þyrlu Gæslunnar til Reykjavíkur og tveir verða fluttir til aðhlynningar á Selfossi.
Ekki sé hægt a segja til um alvarleika áverka að svo stöddu.
Lokað er fyrir umferð í báðar áttir á Suðurlandsvegi austan við Sólheimajökul meðan á vinnu á vettvangi stendur. Íris segir umferðarþunga vera á svæðinu en lögregla á vettvangi reyni að finna hjáleið sem hægt er að beina umferð annað.
Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við umferðartöfum á Hringvegi undan Sólheimajökli. Búist sé við því að vegurinn verði opnaður kl 21:30 að nýju.
Fréttin verður uppfærð.