Á­fall og tjón að missa skyndi­lega teljarann - Vísir

Á­fall og tjón að missa skyndi­lega teljarann - Vísir

Á­fall og tjón að missa skyndi­lega teljarann - Vísir

Það var sunnudaginn 19. ágúst 2001 sem Ragnar Freyr Vestfjörð lést í bílslysi. Hann hafði verið á rúntinum með félögum kvöldið áður og losað beltið á heimleið til að leggja sig aftur í. Vinur Ragnars sem ók bílnum sofnaði við stýrið. Til minningar um Ragnar var Raggagarður reistur.

„Gestateljarinn sýnir okkur hversu margir heimsækja garðinn, hvenær álagið er mest og hefur meðal annars verið notaður við ákvarðanir um stærð bílastæðis og skipulag svæðisins,“ segir Vilborg og það hafi verið afar bagalegt að missa hann í maí.

„Ég varð fyrir áfalli vegna þess að nú bý ég í burtu og þó að maður sé á svæðinu þá er garðurinn svo stór að maður gerir sér enga hugmynd um hvað eru margir í garðinum. Ég komst að þessu þegar ég fór að tékka hvað hefðu verið margir þarna í júní og þá sé ég að hann bara virkar ekki. Ég hélt að batteríið væri búið,“ segir hún og hafi þá verið tjáð að það hefði verið slökkt á honum samhliða því að slökkt hafi verið á 2G og 3G sendum um land allt.

Þurfi annað hvort að hætta að telja eða kaupa nýjan

„Ég hafði ekki hugmynd um að hann gengi fyrir þessu,“ segir hún og heldur áfram:

„Þannig að ég stóð bara frammi fyrir því að annaðhvort að hætta að hafa teljara og vita ekkert hvað það eru margir að koma í garðinn, og mér finnst það frekar óþægilegt, eða kaupa nýjan og hann kostar 395 þúsund, þegar virðisaukaskatturinn bætist við verður þetta alveg um hálf milljón.“

Hún segir að nýr teljari sem treysti á 4G tækni hafi verið settur upp þann 6. júlí og sé því búinn að telja í allt sumar en þau hafi þurft að greiða fyrir þetta sjálf og leiti því eftir því núna að vinna upp þetta fjárhagslega tjón. Þau hafi engar tekjur því þau selji ekki inn í garðinn en afli fjár með dósasöfnun auk þess sem baukur er við innganginn og upplýsingar um reikningsnúmer.

„Við höfum engar tekjur, seljum ekki inn í garðinn. Hann var byggður upp með það markmið að foreldrar með litlar tekjur gætu farið með börnin sín eitthvað oft.“

Hún segir teljarann auk þess nýtast Súðavíkurhreppi því það sé enginn annar teljari í bænum. Súðavíkurhreppur hefur styrkt kaupin um 150 þúsund og æskuvinur Ragga um 100 þúsund en eftir standa 250 þúsund krónur. Vinkonur Ragga, Aldís Ýr Ólafsdóttir og Sigríður Fanndís Jónbjörnsdóttir, hófu því í sumar söfnun fyrir því sem eftir stóð. Söfnunin er enn opin en er búin að ná markmiði sínu.

„Þau ákváðu, bekkjarvinir Ragga heitins, sem hann heitir eftir, garðurinn, að standa fyrir þessari söfnun.“

Aldís segir ánægjulegt hversu vel hefur verið tekið í söfnunina.

Ragnar og Aldís voru góðir vinir. Aðsend

„Við vorum fermingarsyskini, hann flutti til Súðavíkur þegar ég var að flytja þaðan, en við vorum alltaf saman. Það er svo stutt á milli,“ segir Aldís sem flutti til Ísafjarðar á þessum tíma. Þau hafi svo verið saman í framhaldsskóla.

„Þetta var yndislegur drengur,“ segir hún og að þau hafi rúntað heilmikið. „Við vorum auðvitað unglingar.“

Raggagarður er í gömlu byggðinni á Súðavík. Aðsend

Aldís kynntist Vilborgu, móður Ragnars, betur í seinni tíð í tilefni af afmælishátíð Raggagarðs í fyrra.

„Það hefur skapast vinskapur með okkur og við kynntumst við undirbúning hátíðarinnar,“ segir hún og að þess vegna hafi Vilborg fengið hana til að tala fyrir söfnuninni og garðinum í sumar.

Ver öllum sumarstundum í garðinum

Vilborg er sjálf flutt á Akureyri en hefur alla tíð varið löngum stundum fyrir vestan, sérstaklega á sumrin.

„Ég eyði öllum sumarfríunum nánast, ég og maðurinn minn fyrir vestan, í að hugsa um garðinn eftir að við fluttum,“ segir Vilborg.

Að vori fari hún með hópi fólks, að norðan og heimamönnum, til að opna garðinn og svo fari þau aftur í september til að loka garðinum.

„Þá tökum við vatnið af klósettunum, svo það frjósi ekki, og setjum alla lausamuni inn.  Borð og bekki inn í kofana,“ segir hún og að það sé vel hugsað um allt og hugsað í hverja krónu sem fer í reksturinn.

Hún segir því afar bagalegt að missa teljarann.

„Við fengum hann að mig minnir 2019, og mér fannst þetta sniðugt. Hann telur inn og út af leiksvæðinu. Ég var með gestabók og reyndi ég að telja alla sem skrifuðu í gestabækurnar á þeim tíma og það eru ekki nema fjörutíu prósent sem skrifa.“

Á þessum tíma hafi þau verið að vinna að því að stækka garðinn og stækka bílastæði og þetta hafi því verið „alveg briljant“ á þeim tíma til að sjá hversu mikil umferðin er um garðinn.

„Síðan hefur þetta orðið meira heldur en ég átti von á. Í fyrra voru um tuttugu þúsund gestakomur í garðinn, fólk sem kom og kom aftur seinna. Þetta er rosa fjöldi í litlu þorpi.“

Margir komi af skemmtiferðaskipunum sem stöðva við Ísafjörð. Sérstaklega til að skoða Boggutún sem er útivistarsvæði við Raggagarð og er nefnt í höfuðið á Vilborgu, sem alltaf er kölluð Bogga. Við garðinn er einnig að finna minningarreit sem opnaður var árið 2005 til minningar um þau fjórtán sem létust í snjóflóðinu í Súðavík aðfaranótt 16. janúar 1995.

„Rúturnar frá skemmtiferðaskipunum eru að koma á minningarreitinn og það er farið með hópinn þangað. Þeim finnst svo áhugavert Boggutúnið með öllum þessum listaverkum, rekaviðarskógi og gömlu hvalbeinunum frá 1883. Það er náttúrulega svo mikil saga,“ segir hún.

Fólk kemur iðulega saman í garðinum. Raggagarður

Fæst fari inn á leiksvæðið, nema þau sem ætli á salernið, og því sé fjöldinn líklega meiri sem heimsæki svæðið, þau bara fari ekki inn á svæðið sem telji.

Listaverk og útivist

Hún segir svæðið henta ólíkum aldurshópum. Leiksvæðið sé fyrir börn en Boggutúnið sé fullt af listaverkum og sögulegum munum.

„Þetta er orðið fyrir alla aldurshópa, og saga garðsins mjög merkileg líka. Fólk er að koma aftur og aftur,“ segir hún og að í Raggagarði og Boggutúni nái hún alltaf að hlaða batteríin.

„Ég hitti reglulega fólk og það er búið að koma kannski með tveggja eða þriggja ára millibili og segir: „Það er alltaf eitthvað nýtt og spennandi þegar ég kem hérna.“. “

Hrunið hafði áhrif

Raggagarður er fjölskyldugarður í Súðavík á Vestfjörðum sem er ætlaður fólki á öllum aldri. Þar er að finna fjölbreytt leiksvæði, útivistaraðstöðu, gönguleiðir, grillaðstöðu og notaleg samkomusvæði þar sem fjölskyldur og vinahópar geta notið samveru. Árið 2004 var félagið Raggagarður stofnað og fyrsta skóflustungan tekin. Garðurinn var opnaður árið 2005.

Hún segir það hafa tekið nokkurn tíma að byggja garðinn og að hrunið hafi haft veruleg áhrif.

„Það kom hrunið og þá hækkuðu leiktækin um nærri helming í verði. En þá byrjaði ég á draumasvæðinu mínu. Ég þarf ekki starfsleyfi fyrir Boggutún. Þetta er bara skilgreint útivistarsvæði,“ segir hún og að þar  fái hún útrás fyrir sköpunargleði með því að búa til ýmsa hluti.

„Það eru línukefli og línustaurar sem ég sagaði niður og setti sæti ofan á og krakkarnir labba hringinn og velja hvort þau sitji í Súðavík eða á Þingeyri,“ segir hún en hvert þorp á Vestfjörðum á sinn staur. 

„Það er hægt að búa til svo margt úr litlu sem er athyglisvert og skemmtilegt.“

Gott aðgengi er fyrir fatlaða í garðinum. Raggagarður

Hún segir það hafa verið draum sinn lengi að gera Boggutúnið og það hafi verið gífurlegur áhugi á garðinum. Á túninu sé til dæmis núna að finna níu listaverk eftir þrjá listamenn. Gerði Gunnarsdóttur, Söru Kwiek og Jón Gunnar Árnason. 

„Það eru núna níu listaverk í garðinum og eitt stórt rétt fyrir neðan garðinn af því það er svo stórt. Það er listaverkið eftir Jón Gunnar Árnason, sem gerði Siglingu sem er við Drottningarbraut á Akureyri og Sólfarið á Sæbraut. Svo er ég með Blóm í glugga í Súðavík. Þannig að það er Akureyri, Reykjavík, Súðavík,“ segir hún og að listaverkið hafi áður verið í einkaeigu en fjölskyldan sem átti það hafi flutt burt og viljað koma því fyrir í Raggagarði.

„Þannig að ég get aldrei sagt nei takk. Þetta bara kemur í garðinn, ég hef ekki beðið um neitt einasta listaverk.“

Hún segir þau hafa mikinn metnað fyrir því að hafa allt í topp standi í garðinum og þau passi vel upp á leiktækin og allt sem er í honum. Hún segir að þó svo að þau pakki lausamunum fyrir veturinn sé garðurinn alltaf opinn. Hann sé samt sem áður á snjóflóðahættusvæði og því eðlilega minna notaður á veturna.

Vilborg segir dásamlegt að hafa þennan stað til að heimsækja.

„Við erum flutt að vestan og flestir fara í sumarbústaðinn sinn, ég á engan sumarbústað. En garðurinn er til staðar.“

Ragnar Freyr var ungur maður þegar hann lést í bílslysi. Aðsend

Sjálf hafi hún ekkret ætlað í sumar vestur, í fyrsta sinn, en hafi getað fjarstýrt starfsmanni sem hreppurinn styrkti þau um. Starfsmaður hafi átt að passa upp á klósettið,  dósatunnurnar og hreinsa gróður.

„Ég fjarstýri honum og garðurinn kemst alveg fínt af án mín, en ég kemst ekki af án þess að koma í garðinn. Ég verð að játa það, ég fann það bara þegar ég fór þessa einu viku þarna, ég bara varð. Ég er háð garðinum, þetta er bara svo mikið hjarta. Þetta er orkulind fyrir mig. Þó að maður djöflist þarna frá morgni fram á kvöld, að hreinsa gróður og gera, þá bara hleðst einhvern veginn batteríið, ég skil þetta ekki,“ segir hún og hlær.

Hægt er að skoða hvalsporð og ýmis listaverk á Boggutúni. Raggagarður

Heiður að fá verðlaun og fálkaorðu

Garðurinn hefur fengið fjölda verðlauna og Bogga sjálf hlaut fálkaorðuna 2023 og viðurkenningu frá Súðavíkurhreppi sem „Sprakki Súðavíkur“. Vilborg segir mikinn heiður að því.

„Ein lítil kona, verkakona, getur bara umsnúið, lagt sitt af mörkum til að breyta samfélaginu sínu. Það geta þetta allir. Þetta er bara spurningin um að hafa trú á verkefninu og halda markvisst áfram. Það getur stundum kostað blóð, svita og tár en aldrei að gefast upp.“

#missa #skyndilega #teljarann #tjón #áfall


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262930439d/afall-og-tjon-ad-missa-skyndilega-teljarann

📰 Aðrar fréttir

Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 2
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 2
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 2
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 2
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 3
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
📅 22.10.2026 👁️ 2
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
Drenglyndi hópur foreldra og kennara hefur vakið athygli á upplýsingaóreiðunni sem fylgir því þegar fjölmiðlar segja frá ,,óléttum karlmanni.“ Dv Kvör...
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
📅 22.10.2026 👁️ 2
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu...
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavé...
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær að efsta hæð bílahússins við Bergstaðastræti verði opnuð sem P1-gjaldsvæði. Miðhæð hússins er þegar rekin m...
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
📅 22.10.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu á...
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
📅 22.10.2026 👁️ 2
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
Journalist Will Murray describes how he and a bystander saved an SUV driver from his vehicle.
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugarnar hafi lent í nokkrum hverfum Kænugarðs og valdið þar skaða á íbúðarhúsnæði, orkuinnviðum og...
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
📅 22.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
The friend of a woman claiming to have been raped by Russell Brand says she said he was "quite aggressive".
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 3
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
📅 22.10.2026 👁️ 2
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
He says he found treasure in his attic where the collection had been stored for 15 years.
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 3
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 3
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 4
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 4
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 4
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 4
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 4
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...