Þrjár vinkonur á höfuðborgarsvæðinu eru ótrúlega samrýmdar þegar kemur að barneignum án þess að vita af því fyrir fram. Vinkonurnar eignuðust allar börn í desember 2024 eða janúar 2025 og allar eignuðust þær aftur þrjú börn í júní eða júlí í sumar, allt stelpur.
Saga vinkvennanna er mögnuð en þær kynntust í kringum meðgöngurnar 2024. Bergdís og Inga eignuðust sín börn á sama degi, eða á jóladag 25. desember 2024, og Elín eignaðist sitt barn mánuði á eftir, eða 23. janúar 2025. Stuttu síðar urðu þær allar óléttar aftur og eignuðust allar stelpur á fimmtán daga tímabili í júní og júlí í sumar.
„Þetta eru Hanna Sóley, Matthildur Sísí og þessi er reyndar ekki komin með nafn. Þarna eru þær bara um tveggja og þriggja vikna,” skýrir Bergdís Bjarnadóttir, ein af mömmunum, út þegar hún sýnir mynd af stelpunum í síma. Og hér eru eldri krakkarnir.
„Ernir Snær, Hrafnhildur Dóra og Unnsteinn Óli” segir Bergdís þegar hún telur upp nöfn eldri krakkanna.
„Þetta er mjög skemmtileg saga, það eru ekki margir sem geta deilt þessari upplifun held ég,” segir Elín María Johannesen, ein af mömmunum og Bergdís bætir við.
„Svo bara einhvern veginn fæddist fyrsta barnið þarna 17. júní og þessi kom 28. júní og svo kom þessi fjórum dögum seinna, 2. júlí,”
Og eruð þið allar svona samræmdar í uppeldinu og svona?
„Já, mjög, það er eiginlega magnað hvað við eigum mikið sameiginlegt,” segir Elín María.
Og hvað segja pabbarnir yfir þessu, ykkar menn, eru þeir ekki bara stoltir og ánægðir líka?
„Jú, þeir eru líka orðnir vinir í gegnum þetta en þeir eru kannski meira að sinna eldri börnunum núna á meðan við erum alltaf með þessi litlu,” segir Bergdís og bætir við.
„Fólki finnst þetta magnað þegar við erum tvær svo það heyrir af þriðju vinkonunni líka, þá er það alltaf svona, bíddu, ha, hvað meinar þú?”
Þá er það spurning dagsins: Er búið að plana næstu barneignir eða hvað?
„Já, við verðum eitthvað að sjá til með það, ég held að það sé ekki alveg jafn stutt í næstu,” segir Elín María hlæjandi og Birta svarar líka hlæjandi. „Nei, en svo gerast hlutirnir stundum, já, já, en það er ekki á plani allavega, nei.”
Þriðja mamman í hópnum heitir Inga Rannveig Jóhannesdóttir.