Þrátt fyrir að heimsmeistaramótið í fótbolta sé nýafstaðið eru sumir sem ekki hafa fengið nóg af fótboltakeppnum. Vaskir strákar úr Garðabæ tóku málin í eigin hendur og settu á laggirnar sitt eigið fótboltamót, sem þeir kalla Skemmtimótið. Strákarnir sjá um allt skipulag sjálfir og keppnisskapið var allsráðandi.
Sigurliðið fékk bikar að launum auk þess sem lið í fyrsta til fjórða sæti fengu medalíur. Öll eru verðlaunin þrívíddarprentuð heima hjá Kristjáni Stormi Friðfinnssyni, einum skipuleggjanda.
Spurður um tilurð mótsins bendir Kristján á félaga sinn og segir: „Hann sagði bara mér: Viltu halda mót? Og svo bara að safna krökkum í skólanum og segja mörgum og svona.“
Í stað VAR-tækni til að meta vafaatriði í leiknum styðjast dómarar á Skemmtimótinu við annars konar tækni.
Og rétt eins og á heimsmeistaramótinu þá geta menn meiðst. Þá er að sjálfsögðu kallað á sjúkraliða til að hlúa að hinum slösuðu.